Innlent

Neyðarbeiðni vegna Gaza

Palestínsk börn. Mynd/ Reuters.
Palestínsk börn. Mynd/ Reuters.

Félaginu Íslandi - Palestínu hefur borist neyðarbeiðni frá ísraelsku samtökunum Physicians for Human Rights um aðstoð við kaup á þeim nauðsynjum sem spítalar á Gaza hafa óskað eftir, svo sem lyfjum, rúmum, súrefni og sótthreinsuðum áhöldum. Þetta kemur fram í tilkynningu sem félagið sendi frá sér í kvöld.

Þar segir að heimurinn horfi nú upp á grimmúðleg illvirki Ísraelshers sem beiti til þess bandarískum vígbúnaði og hernaðartækni. Með ofurefli sé níðst á varnarlausum palestínskum íbúum eins þéttbýlasta svæði heims, sem séu lokaðir inni og geta hvergi flúið af svæðinu sem breytt hefur verið í risafangelsi. Helmingur íbúanna á Gaza eða 750 þúsund manns séu undir 14 ára aldri. Yfir helmingur íbúana séu flóttamenn, sem þrátt fyrir ályktanir Sameinuðu þjóðanna hafi verið neitað um þann rétt sinn að fá að snúa aftur til heimalands síns í áratugi af ísraelskum yfirvöldum.

Frá því að innrás Ísraelshers hófst á Gaza 27. desember hafi um 800 Palestínumenn verið drepnir, þar af um 300 börn. Meira en 3.000 manns hafi særst og hundruðir fleiri þurfi á læknisaðstoð að halda. Heilbrigðiskerfið, sem hafi fyrir innrásina verið búið að hljóta ómældan skaða vegna 18 mánaða umsáturs Ísraela um Gaza, hafi ekki tök á að sinna særðum og slösuðum. Fregnir berist af því að læknar neyðist til að forgangsraða læknisþjónustu og framkvæma aðgerðir án nauðsynlegra áhalda og lyfja.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×