Enski boltinn

Fabianski áfram hjá Arsenal

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Lukasz Fabianski í leik með Arsenal.
Lukasz Fabianski í leik með Arsenal. Nordic Photos / Getty Images

Markvörðurinn Lukasz Fabianski hefur skrifað undir nýjan langtímasamning við enska úrvalsdeildarfélagið Arsenal.

Fabianski gekk til liðs við félagið árið 2007 og hefur síðan þá unnið sér sæti í pólska landsliðinu. Hann kom við sögu í átján leikjum með Arsenal á síðasta tímabili.

„Þetta er mikil hvatning fyrir mig að leggja áfram hart að mér og sýnir að félagið hefur trú á mér. Ég mun gera allt sem ég get til að endurgjalda það traust með því að hjálpa Arsenal í titilbaráttu næstu ára."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×