Enski boltinn

Fulham enn á höttunum eftir Greening

Ómar Þorgeirsson skrifar
Jonathan Greening í leik með WBA.
Jonathan Greening í leik með WBA. Nordic photos/AFP

Knattspyrnustjórinn Roberto Di Matteo hjá West Brom hefur staðfest að félagið sé í viðræðum við Fulham vegna áhuga Lundúnafélagsins á miðjumanninum Jonathan Greening.

Fulham er búið að vera á höttunum eftir Greening í allt sumar og forráðamenn WBA hafa til þessa hafnað þremur kauptilboðum frá Fulham í leikmanninn en það síðasta var talið nema um 4 milljónir punda.

Greening var ekki með í leikmannahópi WBA í 3-2 sigrinum gegn Peterborough í gærkvöldi og það þykir benda til þess að eitthvað sé nú loksins að gerast á milli WBA og Fulham.

„Félögin eru að ræða saman á ný og þess vegna fannst mér ekki rétt að Jonno myndi spila leikinn," segir Di Matteo í viðtali á opinberri heimasíðu WBA.

Fulham tryggði sér þjónustu Damien Duff í gær og talið er líklegt að Greening bætist í leikmannahóp liðsins á næstu dögum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×