Ensku liðin unnu þau frönsku Elvar Geir Magnússon skrifar 16. september 2008 20:30 Úr leik Marseille og Liverpool í kvöld.
Keppni í Meistaradeild Evrópu hófst í kvöld en þá fór fram fyrsta umferðin í riðlum A-D. Mjög óvænt úrslit urðu í A-riðlinum þar sem CFR Cluj-Napoca frá Rúmeníu gerði sér lítið fyrir og vann 2-1 útisigur á Roma. Frank Lampard kom Chelsea yfir gegn Bordeaux og lagði síðan upp mark fyrir Joe Cole. Enska liðið vann 4-0 sigur en Florent Malouda og Nicolas Anelka bættu við mörkum. Mancini og Adriano skoruðu mörk Inter sem vann útisigur 0-2 á Panathinaikos í B-riðli. Eiður Smári Guðjohnsen fékk ekki tækifæri hjá Barcelona sem vann 3-1 sigur á Sporting Lissabon. Rafael Marquez og Samuel Eto'o komu spænska liðinu tveimur mörkum yfir áður en gestirnir minnkuðu muninn. Xavi innsiglaði síðan sigurinn undir lokin Í D-riðli vann Liverpool góðan 2-1 útisigur á franska liðinu Marseille. Heimamenn komust yfir en Steven Gerrard svaraði með tveimur mörkum. Það fyrra var stórglæsilegt en það síðara kom úr vítaspyrnu sem dæmd var eftir að brotið var á Ryan Babel. Öll mörk leiksins komu í fyrri hálfleik en í blálokin var Marseille nálægt því að jafna metin. Sergio Agüero skoraði tvö mörk fyrir Atletico Madrid sem sýndi frábæra frammistöðu gegn PSV Eindhoven og vann 3-0 sigur á útivelli. A-riðill:Chelsea 4-0 Bordeaux Roma 1-2 CFR Cluj-NapocaB-riðill: Panathinaikos 0-2 Inter Milan Werder Bremen 0-0 Anorthosis FamagustaC-riðill: Barcelona 3-1 Sporting Basle 1-2 Shakhtar DonetskD-riðill: Marseille 1-2 Liverpool PSV 0-3 Atletico Madrid
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Körfubolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Sjá meira