Enski boltinn

Meiðsli Gomes ekki alvarleg

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vedran Corluka, varnarmaður Tottenham, kallar á aðstoð eftir meiðsli Gomes í kvöld.
Vedran Corluka, varnarmaður Tottenham, kallar á aðstoð eftir meiðsli Gomes í kvöld. Nordic Photos / Getty Images

Harry Redknapp, stjóri Tottenham, segir að meiðslin sem Heurelho Gomes markvörður varð fyrir í kvöld séu ekki alvarleg.

Gera þurfti hlé á leik Tottenham og Liverpool í ensku deildarbikarkeppninni í kvöld eftir að Gomes lenti í samstuði við Philipp Degen, leikmann Liverpool. Gomes fékk högg á munninn en Redknapp sagði eftir leikinn að hann væri ekki illa slasaður.

Annars var Redknapp í skýjunum eftir 4-2 sigur sinna manna í kvöld en þetta er í annað skiptið á skömmum tíma sem Tottenham vinnur Liverpool.

Tottenham byrjaði skelfilega í haust en eftir að Redknapp tók við fyrir tæpum þremur vikum hefur liðið náð frábærum úrslitum.

„Við höfum nú skorað átján mörk í þeim fimm leikjum sem ég hef stýrt. Við höfum einnig fengið Les Ferdinand til liðs við okkur til að þjálfa framherjana. Ég sagði honum að ef við hættum að skora þá væri það honum að kenna," sagði Redknapp í léttum dúr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×