Liverpool og Arsenal voru lengi í gang 18. október 2008 15:59 Van Persie og Nasri skoruðu báðir fyrir Arsenal í dag AFP
Liverpool og Arsenal unnu bæði sigra í ensku úrvalsdeildinni í dag eftir að hafa verið undir í hálfleik á heimavelli. Liverpool lagði Wigan 3-2 og Arsenal vann Everton 3-1. Egyptinn Amr Zaki var í stuði á móti Liverpool og kom liði sínu Wigan í 2-1 á Anfield með tveimur mörkum í fyrri hálfleik. Dirk Kuyt hafði áður jafnað metin í 1-1. Daniel Agger var í fyrsta skipti í byrjunarliði Liverpool í deildinni og hann átti alla sök á fyrra marki Zaki eftir klaufagang í vörninni. Síðari hálfleikurinn var mjög fjörugur og fengu bæði lið ágæt marktækifæri, en vendipunkturinn í leiknum var þegar Antonio Valencia hjá Wigan var vikið af leikvelli 15 mínútum fyrir leikslok. Fimm mínútum eftir það jafnaði Albert Riera fyrir Liverpool með sínu fyrsta marki fyrir félagið og Dirk Kuyt tryggði liðinu svo sigur með öðru marki sínu fimm mínútum fyrir leikslok. Liverpool komst með sigrinum upp að hlið Chelsea á toppi deildarinnar og hefur það hlotið 20 stig. Arsenal smellti sér í þriðja sætið með 3-1 sigri á Everton á heimavelli. Gestirnir höfðu yfir 1-0 í hálfleik með marki Leon Osman í byrjun, en Samir Nasri jafnaði fyrir Arsenal í þeim síðari. Þegar 20 mínútur lifðu leiks skoraði Robin van Persie og varamaðurinn Theo Walcott tryggði svo heimamönnum sigurinn þegar skammt var til leiksloka. Leikjum Aston Villa-Portsmouth, Bolton-Blackburn og Fulham-Sunderland lauk öllum með 0-0 jafntefli. Grétar Rafn Steinsson var í byrjunarliði Bolton og var skipt út af á 78. mínútu, en Hermann Hreiðarsson sat allan tímann á bekknum hjá Portsmouth.
Enski boltinn Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Körfubolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Enski boltinn Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Körfubolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Fleiri fréttir Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Sjá meira