Átta rauð spjöld í leikjum dagsins 8. júní 2008 17:12 HK og ÍA skildu jöfn þar sem eitt víti og eitt rautt spjald litu dagsins ljós
Það var sannarlega mikið fjör í leikjum dagsins í Landsbankadeild karla í knattspyrnu. Sex vítaspyrnur voru dæmdar í leikjunum fimm og átta menn fengu að líta rauð spjöld. Mesta fjörið var í leik Fram og Grindavíkur á Laugardalsvellinum en þar fengu þrír leikmenn Grindavíkur reisupassann. Þetta voru þeir Scott Ramsay, Marinko Skaricic og Zoran Stamenic. Þá voru misnotaðar tvær vítaspyrnur í leiknum - ein á hvort lið - en það voru þeir Andri Steinn Birgisson hjá Grindavík og Paul McShane hjá Fram sem klikkuðu á spyrnum sínum. Þar með var ekki öll sagan sögð á Laugardalsvellinum, því þeir Milan Stefán Jankovic, þjálfari Grindavíkur, og Ingvar Guðjónsson framkvæmdastjóri liðsins fengu einnig að líta rauða spjaldið að leik loknum. Tvær vítaspyrnur voru dæmdar í leik Keflavíkur og KR í Keflavík og úr þeim skoruðu þeir Guðmundur Steinarsson og Björgólfur Takefusa. Davíð Þór Viðarsson fékk að líta rauða spjaldið í leik FH og Fjölnis og sömu sögu var að segja af Stefáni Þórðarsyni hjá ÍA - en hann fékk reyndar rauða spjaldið annan leik sinn í röð. Vjekoslav Svadumovic skoraði jöfnunarmark ÍA úr vítaspyrnu í leiknum. Atli Sveinn Þórarinsson fékk að líta rauða spjaldið í leik Íslandsmeistara Vals og Breiðabliks og þar misnotaði Blikinn Prince Rajcomar vítaspyrnu. Í fréttinni í tenglinum hér fyrir neðan er stiklað á stóru yfir það helsta sem gerðist í leikjum dagsins, en nánari umfjöllun um leikina kemur hér á Vísi snemma í fyrramálið.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Keflavík lagði KR í frábærum leik Toppliðin FH og Keflavík unnu leiki sína í dag þegar sjötta umferð Landsbankadeildarinnar kláraðist með fimm leikjum. Leikur Keflavíkur og KR var sannkölluð flugeldasýning og lauk með 4-2 sigri heimamanna. 8. júní 2008 15:49 Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Sjá meira
Keflavík lagði KR í frábærum leik Toppliðin FH og Keflavík unnu leiki sína í dag þegar sjötta umferð Landsbankadeildarinnar kláraðist með fimm leikjum. Leikur Keflavíkur og KR var sannkölluð flugeldasýning og lauk með 4-2 sigri heimamanna. 8. júní 2008 15:49