Keflavík lagði KR í frábærum leik 8. júní 2008 15:49 Atli Viðar Björnsson skoraði bæði mörk FH í dag
Toppliðin FH og Keflavík unnu leiki sína í dag þegar sjötta umferð Landsbankadeildarinnar kláraðist með fimm leikjum. Leikur Keflavíkur og KR var sannkölluð flugeldasýning og lauk með 4-2 sigri heimamanna. Guðmundur Steinarsson kom Keflavík á bragðið með marki úr víti á 15. mínútu og Hörður Sveinsson kom heimamönnum í 2-0 á 22. mínútu eftir skelfileg varnarmistök gestanna. Björgólfur Takefusa minnkaði muninn fyrir KR úr vítaspyrnu í uppbótartíma fyrri hálfleiks og framherjinn knái náði svo að jafna leikinn strax á þriðju mínútu síðari hálfleiks. Keflvíkingar létu hinsvegar ekki slá sig út af laginu og Guðmundur Steinarsson bætti við öðru marki sínu á 54. mínútu. Það var svo Símun Samuelsen sem innsiglaði sigur Keflvíkinga á 86. mínútu. Bæði lið fengu aragrúa færa til að skora fleiri mörk og óhætt er að segja að hér hafi verið á ferðinni einn af skemmtilegri leikjum sumarsins. FH áfram á toppnum FH-ingar byrjuðu vel gegn Fjölni og Atli Viðar Björnsson gerði að heita má út um leikinn með tveimur mörkum á 17. og 27 mínútu eftir laglegan undirbúning nafna síns Guðnasonar. Segja má að mörkin hafi komið á góðum tíma því Davíð Þór Viðarsson fékk að líta rauða spjaldið á 30. mínútu leiksins. Fjölnismenn gerðu harða hríð að marki FH í síðari hálfleiknum og þurftu FH-ingar m.a. að bjarga á línu, en þeir náðu að halda fengnum hlut og tryggðu sér þrjú stig og halda efsta sæti deildarinnar. Valsmenn lögðu Blika Valsmenn lögðu Breiðablik 1-0 á heimavelli sínum á Hlíðarenda. Fyrri hálfleikur var ekki sérlega fjörugur, en líf færðist í leikinn á 52. mínútu þegar Albert Ingason skoraði það sem reyndist sigurmark Vals. Albert skoraði eftir góða sendingu Helga Sigurðssonar en Prince Rajcomar klúðraði vítaspyrnu fyrir Blika á 79. mínútu. Atli Sveinn Þórarinsson fékk að líta rauða spjaldið hjá Val á 81. mínútu þegar hann fékk sitt annað gula spjald. Mikill hasar á Laugardalsvelli Grindavík lagði Fram 1-0 í ótrúlegum leik á Laugardalsvelli þar sem heimamenn léku þremur mönnum færri þegar flautað var til leiksloka. Það var Scott Ramsay sem skoraði sigurmark Grindavíkur beint úr hornspyrnu á 57. mínútu. Bæði lið fengu ágæt færi í fyrri hálfleik, en hafi sá fyrri verið tíðindalítill, lifnaði heldur betur yfir hlutunum í þeim síðari. Þrír Grindvíkingar fengu að líta rauða spjaldið í hálfleiknum. Fyrstur fauk Marinko Skaricic á 61. mínútu, þá Zoran Stamenic á 86. mínútu og þá Scott Ramsay á 89. mínútu. Bæði lið misnotuðu vítaspyrnu í leiknum. Andri Birgisson fyrir fram á 56. mínútu og Paul McShane fyrir Fram á 61. mínútu. Framarar fengu aragrúa færa til að nýta sér liðsmuninn undir lokin en boltinn hreinlega vildi ekki í markið. Ótrúlegur sigur hjá Grindavík. Aftur sá Stefán rautt HK og ÍA skildu loks jöfn 1-1 í Kópavogi. Mitja Bruic kom HK yfir með marki á 26. mínútu og ekki skánaði útlitið fyrir Skagamenn á 51. mínútu þegar Stefán Þórðarson fékk að líta rauða spjaldið. Hann var ný kominn úr banni eftir að hafa fengið rautt spjald fyrir nokkru. Skagamenn efldust við mótlætið og voru á kafla betri aðilinn í síðari hálfleik og það var Vjakoslav Svadumovic sem jafnaði fyrir ÍA með marki úr vítaspyrnu á 76. mínútu. FH á toppnum FH-ingar hafa 16 stig á toppi deildarinnar að loknum sex umferðum og Keflvíkingar eru í öðru sæti með 15 stig, en nokkuð bil er í næstu lið. Fram, Fjölnir, Valur og Fylkir hafa öll hlotið níu stig í 3. til 6. sæti og þar á eftir koma Þróttur og Breiðablik með 8 stig. ÍA og HK sitja á botninum með 5 og 4 stig.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira