Fótbolti

Eggert lék allan leikinn með Hearts

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eggert Gunnþór Jónsson, leikmaður Hearts.
Eggert Gunnþór Jónsson, leikmaður Hearts. Nordic Photos / Getty Images
Eggert Gunnþór Jónsson lék í dag allan leikinn í vörn Hearts sem gerði 1-1 jafntefli við Aberdeen í skosku úrvalsdeildinni í dag.

Hearts hefur ekki náð að fylgja eftir góðri byrjun í haust og er nú í fimmta sæti deildarinnar með fjórtán stig eftir tíu leiki. Celtic er á toppi deildarinnar með 25 stig en liðið vann 4-2 sigur á Hibernian í dag.

Rangers er þremur stigum á eftir Celtic en á leik til góða. Rangers vann 3-1 útivallarsigur á Hamilton í dag.

Í ensku D-deildinni var Gylfi Sigurðsson í byrjunarliði Shrewsbury sem gerði 1-1 jafntefli við Brentford.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×