Íslenski boltinn

Allt eftir bókinni í kvennaboltanum

Elvar Geir Magnússon skrifar

Heil umferð var í Landsbankadeild kvenna í kvöld en þá fór 10. umferðin fram. Úrslitin voru öll eftir bókinni.

Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Val sem vann 3-1 útisigur gegn Þór/KA. Valur er með 30 stig í efsta sæti, þremur stigum á undan KR sem vann Keflavík 4-0 í Vesturbænum í kvöld.

Stjarnan á leik inni en er í þriðja sæti, tíu stigum á eftir KR. Stjörnustúlkur unnu 4-0 sigur á HK/Víking þar sem Inga Birna Friðjónsdóttir skoraði tvívegis. HK/Víkingur er í næstneðsta sæti deildarinnar með sex stig, stigi á undan Fjölni.

Lizzy Karoly skoraði tvö mörk í blálokin og tryggði Fylki 2-0 sigur á Fjölni í kvöld. Þá vann Breiðablik 3-0 sigur á Aftureldingu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×