Íslenski boltinn

Ian Jeffs genginn í raðir Vals

Elvar Geir Magnússon skrifar
Jeffs í leik með Fylki gegn Þrótti.
Jeffs í leik með Fylki gegn Þrótti.

Knattspyrnumaðurinn Ian Jeffs hefur gengið til liðs við Val frá Fylki. Jeffs er 26 ára og hefur einnig leikið með ÍBV hér á landi.

Jeffs gekk í raðir Fylkis fyrir ári síðan og lék 18 leiki með Árbæjarliðinu í sumar þar sem hann skoraði tvö mörk. Hann er annar leikmaðurinn sem gengur í raðir Vals á skömmum tíma en varnarmaðurinn Reynir Leósson kom frá Fram á dögunum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×