Fótbolti

Ljungberg sagður á leið í MLS

AFP

Sænski miðjumaðurinn Freddie Ljungberg er nú sagður við það að ganga í raðir Seattle Sounders í bandarísku knattspyrnudeildinni MLS.

Ljungberg lék áður með Arsenal og West Ham en sænskir fjölmiðlar fullyrða að búið sé að ganga frá samningi. Umboðsmaður Ljungberg neitaði að staðfesta það í samtali við Aftonbladet.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×