Veislunni er loksins lokið 4. desember 2008 06:00 Brugðið á leik á setrinu áður en allt fer til fjandans og óðalið er selt fyrir skuldum.Fréttablaðið/Pjetur
Í kvöld frumsýnir Nemendaleikhúsið Kirsuberjagarðinn eftir Anton Tsjekhov á Litla sviði Borgarleikhússins. Sýningin er hluti af lokaári árgangs í leiklistardeild Listaháskóla Íslands. Nemendur takast þá á við heildstæð verkefni og hér er ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur. Kirsuberjagarðurinn eftir Anton Tsjekhov er samið 1904, á miklum umbrotatímum í Rússlandi þar sem undirliggjandi spenna milli þjóðfélagshópa er allsráðandi, samfélagsgerð sem ríkt hefur um aldir er að hverfa og ný að taka við. Nýríku auðmennirnir í Rússlandi náðu ekki að fara í útrás, landið var allt bundið í viðjar samfélagshátta lénskipulags. Landbúnaður var frumstæður og iðnaður var vanþróaður. Stjórnkerfi landsins var svifaseint og afturhaldssamt með yfirstétt studda aðli og kirkjuvaldi sem hélt öllu í helgreipum. Óþreyja var mikil í samfélaginu og sterkir kraftar tókust á. Um síðir var samfélaginu umbylt. Rússlandi var umbylt, kapítalisminn sigraði ekki, aðallinn sigraði ekki -fólkið sigraði ekki. Yfir samfélagið lagðist um síðir ógnarstjórn eftir hatramma borgarastyrjöld. Í kynningu Nemendaleikhússins er verkinu líkt við hús sem er að hruni komið: „Eftir fimm ára fjarveru snýr Ljubov Ranjevskaja aftur heim. Býli hennar, víðfrægur kirsuberjagarður, er að verða gjaldþrota vegna mikilla skulda og það blasir við að innan skamms tíma verði það selt á uppboði. Ranjevskaja hefur eytt um efni fram, sóað gegndarlaust, án þess að leiða hugann nokkurn tímann að morgundeginum." Hin víðfræga líking við kirsuberjagarðinn eins og heitið hefur verið þýtt á íslensku er ekki fullkomin: garðurinn inniber í íslensku lítið svæði, meðan kirsuberjaskógar á víðlendum jörðum rússneska landaðalsins voru gríðarleg flæmi sem voru nýtt bæði vegna berja og viðar. Í hugmyndaheimi þeirra landa sem búa við kirsuberjatré er tegundin ræktuð vegna berjanna, en blóminn er ekki síður táknlegur: eftir harða vetur ber kisruberjatréð skamma hríð snemma á vorin falleg blóm sem lita allt umhverfi sitt og eru sterkur boði um vor og sumar. Í verki Tsjekhov er líkingin um vorblómann samslungin lífsstíl sem er á hverfanda hveli. Nýtt afl er að taka við í samfélaginu. Krakkarnir í Nemendaleikhúsinu ganga svo langt að lýsa verkefni sínu sem samtali við íslenskan samtíma: „Ísland í dag er á sögulegum örlagapunkti. Hinir áhyggulausu dagar eru á enda - skemmtum okkur þangað til við deyjum!!" segir í tilkynningu þeirra. Leikstjóri er Daniel Rylander, aðstoðarleikstjóri Guðmundur Kr. Oddsson. Leikmynd og búningar: Sigurður Óli Pálmason, lýsing: Egill Ingibergsson, tónlist og hljóðmynd: Jóhann Friðgeir Jóhannson. Framkvæmda-og tæknistjórn: Egill Ingibergsson og aðstoð við leikmynd og tæknivinnu: Brynja Björnsdóttir. Leikstjórinn er sænskur og ungur að árum eins og flestallir samstarfsmenn hans: Daniel og Sigurður Óli lærðu báðir í Statens teaterskole í Kaupmannahöfn og þekkjast því. Sigurður útskrifaðist fyrir ári og hefur mest unnið úti til þessa, en Daniel útskrifaðist í vor. Nemendaleikhús Listaháskóla Íslands í vetur skipa: Bjartur Guðmundsson, Hannes Óli Ágústsson, Lilja Nótt Þórarinsdóttir, Stefán Benedikt Vilhelmsson, Vigdís Másdóttir, Walter Geir Grímsson og Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir. Sýningar eru fyrirhugaðar á verkinu fram til 19. desember. pbb@frettabladid.is
Mest lesið Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Lífið Ísrael sendir kvörtun til EBU Lífið Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Lífið Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Lífið Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Lífið Í kossaflensi á Beyoncé Lífið „Ég varð stjörf af hræðslu“ Lífið Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Lífið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun Fleiri fréttir Eliza Reid efst á bóksölulistanum Opnaði sumarið með sólríkum stæl Eitt merkilegasta verk 21. aldarinnar á Íslandi Blautir búkar og pylsupartí Mæðgin á stóra sviðinu í Feneyjum með íslenskan arkitektúr „Heyri allt í einu hversu steikt þetta er orðið“ þegar hún útskýrir veikindin fyrir vinum Íslendingar vekja athygli í menningarlífi Kaupmannahafnar Fimmtíu ára ljósmyndaveisla á sýningu GVA Arngunnur Ýr er bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2025 Lóa Hlín, Rán, Mars og Elías Rúni fá Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar Hugmyndin kviknaði í New York þegar eldgos hófst heima Egill Heiðar Anton Pálsson tekur við sem leikhússtjóri Elti konuna sína yfir hálfan hnöttinn Fjöldi fólks á opnun fölsuðu verkanna Mario Vargas Llosa fallinn frá Alls 38 milljónum króna úthlutað úr Myndlistarsjóði Sá stórt tækifæri í fjárfestingarhlið listarinnar Klukkur og kaffibollar í partýi á Prikinu „Mikilvægt að gera hluti sem hann yrði stoltur af“ Fordæmd ást kúrekanna á fjallinu Sjá meira