Logi: Allir skiluðu varnarvinnunni 15. júní 2008 18:57 Logi Ólafsson.
Logi Ólafsson, þjálfari KR, var ánægður með sína menn eftir 3-0 sigurinn gegn Fylki. Sérstaklega var Logi sáttur með varnarvinnu alls liðsins en hún hefur ekki verið nægilega góð það sem af er tímabili. „Við erum mjög ánægðir með það þegar liðið kemur svona sterkt til leiksins. Menn voru að verjast frá fremsta manni til aftasta þá vitum við að hæfileikar liðsins nýtast sem best. Það er betri útgangspunktur í sóknarleiknum að vita að markið er hreint," sagði Logi. Hann gat ekki gefið skýringar á dýfunni sem liðið tók í Keflavík um síðustu helgi. „Við höfum ekki sótt gull í greipar Keflavíkur á undanförnum árum. En oft á tíðum er þetta bara spurning um hugarfar. Menn voru einfaldlega betur stemmdir í dag," sagði Logi. „Ég er mjög ánægður með vinnsluna í öllu liðinu í dag. Við sköpuðum okkur fullt af færum og skoruðum þrjú mörk." Atli Jóhannsson hefur glímt við erfið meiðsli síðan hann gekk til liðs við KR. Hann var í byrjunarliðinu í dag en eftir að hafa fengið höfuðhögg þurfti hann að fara af velli á 20. mínútu. „Þetta er mikil synd fyrir hann. Ég bjóst ekki við að hann yrði tilbúinn fyrr en í júlí en með mikilli elju og aukaæfingum var hann kominn í byrjunarliðið. Ég veit ekki hvaða draugar þetta eru á bakinu á honum," sagði Logi. Gunnlaugur Jónsson var ekki í leikmannahópi KR í dag vegna meiðsla á hné en hann fer í segulómskoðun á morgun og þá kemur framhaldið betur í ljós.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira