Umdeilt fagn hjá leikmanni Ipswich Elvar Geir Magnússon skrifar 10. nóvember 2008 17:45 Norris í leik með Ipswich.
David Norris, miðjumaður Ipswich Town, hefur verið gagnrýndur harðlega fyrir það hvernig hann fagnaði marki sínu um helgina. Hann lét sem hann væri í handjárnum en með því ætlaði hann að sýna fyrrum liðsfélaga sínum, Luke McCormick, stuðning. McCormick var í síðasta mánuði dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir að valda dauða bræðrana Aarons og Ben Peak en þeir voru 10 og 8 ára. McCormick var að keyra heim til Plymouth eftir að hafa verið gestur í brúðkaupi Norris og keyrði á aðra bifreið á leiðinni. Í bílslysinu létust þeir Aaron og Ben. McCormick mældist með óhóflega mikið magn af áfengi í blóðinu en auk þess var bifreið hans ótryggð. Á þessum tíma var hann leikmaður Plymouth. Amanda, móðir drengjana sem létust, er allt annað en sátt við skilaboðin frá Norris. „Svona gerir maður ekki. Ef þú ætlar að sýna honum stuðning þá er hægt að heimsækja hann í fangelsið, skrifa til hans bréf eða hringja í hann. Svona gerir maður ekki," sagði Amanda reið. Enska knattspyrnusambandið hefur skrifað bréf til Ipswich og beðið um útskýringu frá David Norris. Á heimasíðu Ipswich er sagt að Norris verði sektaður af félaginu en hann harmi það að fólk hafi misskilið skilaboð sín.
Enski boltinn Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira