Get ekki sett hvern sem er inn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. júní 2008 11:21 Scott Ramsay verður í banni í leik Grindavíkur og Keflavíkur. Mynd/Vilhelm
Milan Stefán Jankovic, þjálfari Grindavíkur, á í miklum vandræðum með að manna lið sitt fyrir næsta leik liðsins í Landsbankadeild karla. Þrír leikmenn liðsins fengu að líta rauða spjaldið í leik Grindavíkur og Fram um síðustu helgi og voru í gær allir dæmdir í eins leiks bann. Það eru varnarmennirnir Marinko Skaricic og Zoran Stamenic auk sóknarmannsins Scott Ramsay. „Við erum með mjög lítinn hóp og ég get ekki sett hvaða leikmann sem er inn í staðinn fyrir þá sem verða í banni," sagði Milan Stefán í samtali við Vísi. „Við munum því spila æfingaleik við Reyni frá Sandgerði á morgun til að skoða hverjir myndu passa best inn í liðið fyrir leikinn gegn Keflavík." Grindavík mætir Keflavík á sunnudagskvöldið en síðarnefnda liðið hefur unnið fimm af sex leikjum sínum til þessa og skorað flest mörk allra liða í deildinni, átján talsins. „Það er ljóst að margir ungir leikmenn koma til með að spila leikinn gegn Keflavík. Alls er ég með 7-8 leikmenn sem eru nýkomnir úr 2. flokki sem hafa verið að byrja eða verið á bekknum í vor. En við ætlum að leggja okkur alla fram og ég er viss um að þetta muni efla strákana." „Stuðningsmennirnir hafa einnig verið okkar tólfti maður og ég vona að þeir verði duglegir að fjölmenna á völlinn. Þetta verður erfitt enda er Keflavík með hörkumannskap og með átján leikmenn sem gætu allir spilað í byrjunarliðinu." Sjálfur fékk Milan Stefán að líta rauða spjaldið að leiknum loknum og verður því einnig í banni í leiknum, sem og Ingvar Guðjónsson, framkvæmdarstjóri knattspyrnudeildar Grindavíkur.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sauð á Degi sem lét þá sem ráða heyra það Handbolti Tekur Ómar hlutverki fyrirliða Íslands of alvarlega? Handbolti Skotið sem geigaði og breytti öllu fyrir Ísland Handbolti Hver er staðan og hvað tekur við? Handbolti Íslendingar bregðast við stórtíðindum kvöldsins: „Takk fyrir Jesú“ Handbolti „Snorri á alla mína samúð“ Handbolti Skýrsla Henrys: Andlegt gjaldþrot enn og aftur Handbolti Sjáðu myndirnar: Svekkelsi gegn Sviss Handbolti Segir að hrokinn hafi orðið Frökkum að falli Handbolti Íslenskur sigur á morgun gulltryggir sæti í undanúrslitum Handbolti Fleiri fréttir Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Sjá meira