Krefjast aðgerða í Súdan 16. september 2007 14:43 Hópur súdanskra ríkisborgara kom saman í Róm í dag og krafðist þess að endi yrði bundinn á átökin í Darfur. MYND/AP
Efnt verður til mótmæla í um 30 löndum í dag til þess að vekja athygli á því ástandi sem ríkir í Darfur-héraði. Þar hafa um 200 þúsund manns látist á síðustu fjórum árum í átökum uppreisnarmanna og arabískra vígasveita sem sagðar eru njóta stuðnings ríkisstjórnarinnar. Enn fremur hafa um tvær milljónir manna þurft að yfirgefa heimili sín vegna átakanna en vígasveitirnar eru sagðar fara um með fjöldamorðum og ránum á svæðum svartra íbúa Darfur. Með mótmælunum í dag, sem fram fara í flestum af stærstu borgum heims, er ætlunin að eggja helstu leiðtoga heims að grípa í taumana en þeir koma saman til fundar í næstu viku á vegum Sameinuðu þjóðanna. Samtökin hafa þegar ákveðið að senda um 26 þúsund manna friðargæslulið til Darfur til þess að reyna að binda enda á átökin. Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, hefur lýst því yfir að hann vilji að friðargæsluliðarnir verði komnir til Súdans fyrir árslok. Þá hefur hann hótað súdönskum stjórnvöldum refsiaðgerðum sýni þau ekki samvinnu í málinu, en þau hafa verið treg til að hleypa öðrum friðargæsluliðum en afrískum inn í landið.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Missti hönd í mótmælunum Erlent Fleiri fréttir Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sjá meira