Erlent

Hertóku skrifstofur Sósíaldemókrata

Ungir mótmælendur í Kaupmannahöfn hafa hertekið skrifstofur Sósíaldemókrata við Sveasvej í Fredriksberg. Í yfirlýsingu frá hópnum sem hertók skrifstofurnar segir að það hafi greinilega ekki síast inn í höfuð stjórnmálamannana að vandamálin sem skapast hafa vegna Ungdomshússins sé stjórnmálalegs eðlis og því hafi hópurinn ákveðið að beina aðgerðum sínum að skrifstofum stjórnmálaflokks. Lögregla er komin á staðinn en þetta er nokkuð frá Norðurbrú þar sem mótmælin hafa verið mest. Mótmælendurnir segjast ekki ætla að yfirgefa flokkskrifstofurnar fyrr en fundin hefur verið ásættanleg lausn á málinu

Mynd/Teitur
Mynd/Teitur
Mynd/Hari
Mynd/Teitur
Mynd/Hari
Mynd/Hari
Mynd/Hari

Tengdar fréttir

Ætlar borgin að rífa húsið strax í dag?

Ungmenni sem haft hafa aðstöðu í Ungdomshuset hafa kveikt elda á Nörrebrogade og henda nú grjóti og flöskum í átt að lögreglu sem stendur vakt um Ungdomshuset í Kaupmannahöfn. Samkvæmt heimildum Vísir ætlar lögregla að standa vörð um húsið í dag á meðan stórvirkar vinnuvélar koma og rífa það niður, þetta er þó ekki staðfest. Þá munu ungmenni vera að skipuleggja tilraun til að komast aftur inn í húsið.

Lögregla eykur viðbúnað vegna mótmæla

Lögregla eykur enn viðbúnað við Ungdomshuset í Kaupmannahöfn. Fjölmörgum leikskólum og skólum í Nörrebro-hverfinu hefur verið lokað. Þá er lögregla með sérstaka vakt við Stórabeltis-brúnna þar sem búist er við því að ungmenni víðsvegar að í landinu ætli að flykkjast til Kaupmannahafnar til að taka þátt í að mótmæla aðgerðum lögreglunnar við Ungdomshuset. Mótmælendum hefur þegar fjölgað mikið og hefur lögregla að sama skapi aukið viðbúnað sinn. Nokkrir götueldar loga nú í götunum í kringum Jagtvej, þar sem Ungdomshuset stendur en lögregla hefur lokað Jagtvej í báða enda.

Lögregla rýmdi Ungdomshuset

Lögreglan í Kaupmannahöfn gerði áhlaup og rýmdi Ungdomshuset á Norrebro á svipstundu í morgun. Þegar hefur fjöldi mótmælanda safnast saman og búist er við hörðum átökum. Lögregla hefur handtekið um 20 mótmælendur, þ.á.m. hóp sem reyndi að komast framhjá vegtálmum.

Merkri sögu Ungdomshuset að ljúka

Í dag lauk langri sögu Ungdomshuset sem hefur verið vinsæll samkomustaður fyrir ungmenni Kaupmannahafnar í marga áratugi. Átökin milli þeirra og borgaryfirvalda hafa stigmagnast á síðustu misserum og náðu hámarki með rýmingu hússins í morgun. Fróðlegt er að skoða forsögu hússins í ljósi atburða dagsins.

Rífa húsið strax í dag

Lögregla ætlar að rífa Ungdomshuset strax í dag og þegar hefur sprengiefni verið flutt inn í húsið. Aðstandendur hússins hafa boðað frekari fjöldamótmæli í kvöld og búist er við miklum fjölda. Á áttunda tug hafa verið handteknir í mótmælunum.

Óeirðir við Kristjaníu

Óeirðir eru að brjótast út við Kristjaníu í Kaupmannahöfn en þar hafa ungmenni reist vegatálma og fleygt bensínsprengjum. Slökkvilið er á staðnum og reynir að slökkva eldana.Talið er að ungmennin séu að reyna að draga athygli lögreglunnar frá Ungdomshuset á Norrebro. Þar hafa einnig verið kveiktir götueldar og þar er lögregla með mikinn viðbúnað.

Hörð átök á Norðurbrú

Stríðsástand ríkti í Kaupmannahöfn í gær eftir að lögreglan hafði rýmt Ungdómshúsið á Norðurbrú.

Rólegt á götum Kaupmannahafnar í morgun

Lögregla býr sig undir harða öldu mótmæla á Norðurbrú í dag en þar sem hundruð mótmælenda voru handteknir í gær er búist við því að eitthvað verði rólegra í dag. Rólegt hefur verið á götum Kaupmannahafnar í morgun en þó eru enn einhverjar götur lokaðar og til að mynda hefur strætóleiðum verið breytt framhjá átakasvæðunum.

Umsátur á Norðurbrú

Lögreglan í Kaupmannahöfn gerði áhlaup á Ungdomshuset á Norðurbrú í morgun og rýmdi það á svipstundu. Til harðra átaka hefur komið. Óeirðir eru einnig að brjótast út í Kristjaníu þar sem ungmenni hafa reist vegatálma og fleygt bensínsprengjum.

Búast við áframhaldandi látum í dag

Meira en 200 hafa verið handteknir og þrír eða fjórir mótmælendur hafa slasast alvarlega í átökum lögreglu og mótmælenda á Norðurbrú í Kaupmannahöfn en lögregla rýmdi Ungdomshuset svokallaða með áhlaupi í gærmorgun. Heldur var rólegra í nótt en í gærkvöldi en lögregla býst við miklum látum áfram í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×