Dætur Pavarottis véfengja erfðaskrá 19. september 2007 14:33 Pavarotti í Nice í júlí árið 2002. MYND/AFP
Þrjár dætur Luciano Pavarottis af fyrra hjónabandi deila nú um erfðaskrá hans eftir að í ljós kom að hann ánafnaði eiginkonu sinni eignir í Bandaríkjunum sem metnar eru á tvo milljarða. Pavarotti sem lést fyrr í mánuðinum gerði tvær erfðaskrár í sumar. Í þeirri fyrri fær Nicoletta Mantovani eiginkona hans 25 prósent eignanna, en fjórar dætur hans, þar af þrjár frá fyrra hjónabandi fá helminginn. Afgangnum áttu lögmenn að ánafna til ýmissa málefna. Seinni erfðaskráin tekur auk þess til þriggja íbúða í New York, málverka og húsgagna. Þær eignir eru metnar á um tvo milljarða og renna alfarið til Mantovani. Fabrizio Corsini lögmaður systranna þriggja sagði í gær að þær væru ekki ánægðar með seinni erfðaskránna og drægju hana í efa. Hann sagði vilja Pavarottis koma fram í fyrri erfðaskránni, og þess vegna eigi að skipta eignunum í Bandaríkjunum í samræmi við hana. Áhugi á erfðarskránni hefur aukist frá dauða hans vegna fregna af deilu Mantovani og dætranna þriggja og að vandamál hafi verið í hjónabandinu. Dæturnar þrjár skrifuðu bréf sem ein þeirra las upp í sjónvarpi í síðustu viku. Þar neita þær sögusögnum um „þras, draumkenndan auð, síðustu erfðaskrár og yfirlýsingar sem þær viti ekkert um." Terri Robson umboðsmaður stórsöngvarans sagði í tölvupósti til AP fréttastofunnar að seinni erfðaskráin væri svar Pavarottis við orðrómi um brest í hjónabandi. Hún kallaði fréttirnar aðför að eiginkonu hans. Tveir vinir Pavarottis fá um 40 milljónir hvor fyrir vináttu og trygga aðstoð. Þetta eru Edwin Tinoco aðstoðarmaður hans og Veronica Zeggio vinur hans. Pavarotti lést eftir áralanga baráttu við krabbamein í briskyrtli. Hann var 71 árs að aldri.
Mest lesið Vissu ekki að bíllinn hefði oltið fyrr en þær sáu myndir Innlent Íslendingar gerðu það sem tröllunum mistókst Innlent Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Innlent Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Erlent Töluverður viðbúnaður vegna tilkynningar um kajak Innlent „Held hann hafi ekki fattað hvað hann fór rétt að“ Innlent Á sjötta hundrað lentu í vandræðum Innlent Sjálfsafgreiðslukassar og aukin sjálfvirkni auki vandann Innlent Reykur sást á flugvallarsvæðinu Innlent Framtíð Framsóknar, afbrotatölfræði og vankantar á tryggingamarkaði Innlent Fleiri fréttir Pakistanar gerðu loftárásir í Afganistan Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Íranir mótmæla á ný Minnst tólf farist í snjóflóðum á einum mánuði Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Toppurinn kominn á hæstu kirkju heims Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins Sjá meira