Innlent

Skiptafundur hjá Stúdentaráði HÍ í dag

MYND/Hari

Skiptafundur verður hjá Stúdentaráði Háskóla Íslands í dag en þá taka Röskvuliðar við stjórnvelinum í ráðinu eftir fimm ára hlé. Röskva tryggði sér hreinan meirihluta í kosningum til Stúdentaráðs fyrr í mánuðinum og í nýju Stúdentataráði munu sitja ellefu Röskvuliðar og níu Vökuliðar. Fyrsta verk nýs ráðs verður að kjósa sér nýjan formann sem kemur væntanlega úr röðum Röskvu eins og hefð er fyrir þegar fylkingar hafa náð meirihluta í Stúdentaráði Háskólans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×