Fótbolti

Krkic fær nýtt númer hjá Barcelona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Bojan í leik með Barcelona gegn Villarreal.
Bojan í leik með Barcelona gegn Villarreal. Nordic Photos / AFP

Allt útlit er fyrir að táningurinn Bojan Krkic fái nýtt númer hjá Barcelona í janúar næstkomandi sem tákn um stöðu hans hjá félaginu.

Treyjur sem eru merktar númerum 1-25 er haldið frá fyrir fastamenn í aðalliði félagsins en Bojan er nú með númer 27 eftir að hann hóf að spila með aðallinu nú í sumar.

Hann hefur nú fest sig í sessi í leikmannahópi félagsins þrátt fyrir ungan aldur og vill Frank Rijkaard, stjóri liðsins, sýna það í verki með því að gefa honum nýtt númer á treyju sína.

Sem stendur eru númerin 2, 12 og 13 laus. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×