Fjölþjóðlegur hópur um borð í vélinni 16. september 2007 16:36 MYND/AP
Í það minnsta 87 manns hafa fundist látnir eftir að farþegaflugvél frá taílenska lággjaldaflugfélaginu One-Two-Go brotlenti á Phuket-eyju í suðurhluta Taílands fyrr í dag. Alls voru 130 manns um borð, 123 farþegar og sjö í áhöfn, og voru 42 fluttir sárir á sjúkrahús. Talið er að um helmingur farþeganna hafi verið útlendingar en sænskir miðlar greina frá því að tveir Svíar hafi verið meðal þeirra sem komust lífs af úr slysinu. Auk þeirra lifðu 14 Taílendingar, átta Bretar, fimm Íranar, fjórir Þjóðverjar, tveir Ísraelar og Hollendingur, Frakki, Íri, Ástrali, Ítali, Kanadamaður og Austurríkismaður slysið af. Utanríkisráðuneytið hefur falið ræðismanni Íslands að kanna hvort einhver Íslendingur hafi verið í vélinni en engar fregnar hafa borist af því enn. Vélin var að koma frá Bangkok til Phuket-eyju, sem er vinsæll ferðamannastaður, og var slæmt skyggni á eyjunni vegna rigningar. Flugstjórinn hugðist hætta við lendingu á Phuket-flugvelli en það tókst ekki betur en svo að flugvélin steyptist niður og brotnaði í tvennt. Eldur kom í kjölfarið upp í vélinni og segja þeir sem komust lífs af að fjölmargir farþegar hafi orðið honum að bráð. Flugslysið í dag er það mannskæðasta í landinu í nærri níu ár en í desember 1998 lést 101 þegar vél á vegum Thai Airways hrapaði til jarðar. 45 komust lífs af.
Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Fleiri fréttir Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Kærastinn var á staðnum Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur Lentu geimflaug í fyrsta sinn Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Sjá meira