Pavarotti borinn til grafar á Ítalíu 8. september 2007 10:24 Pavarotti lést síðastliðinn fimmtudag af völdum krabbameins. MYND/AFP
Óperusöngvarinn Luciano Pavarotti verður borinn til grafar á Ítalíu í dag. Meðal þeirra sem verða viðstaddir útförina eru söngvararnir Placido Domingo, Jose Carreras og Bono, söngvari hljómsveitarinnar U2. Þá mun Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, einnig verða viðstaddur athöfnina. Útförin hefst klukkan þrjú að staðartíma í dag í Modena á Ítalíu, heimabæ Luciano Pavarotti. Gert er ráð fyrir því að þúsundir manna muni safnast saman til að minnast söngvarans. Hinn blindi tenór, Andrea Bocelli, mun syngja í athöfninni en þá hafa einnig fjölmargir leikmenn ítalska knattspyrnuliðsins Juventus boðað komu sína. Hin fræga listflugssveit ítalska flughersins, Frecce Tricolori, mun fljúga yfir bæinn og mála himininn með litum ítalska fánans um það leyti sem kista söngavarans verður borin út úr dómkirkjunni í Modena. Pavarotti lést á fimmtudaginn, 71 árs að aldri, af völdum krabbameins. Hann greindist með krabbamein í brisi í júlímánuði í fyrra og gekkst undir aðgerði í New York til að fjarlægja meinið. Hann kom ekki fram opinberlega eftir það. Skömmu síðar flutti hann til heimabæjarins, að sögn til að deyja í faðmi fjölskyldunnar.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent Fleiri fréttir Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Sjá meira