Erlent

Hvetja almenning til að forðast sleggjudóma

Forsvarsmenn múslima í Danmörku hvetja almenning til að aðstoða lögreglu eins og það getur við rannsókn hryðjuverkamálsins. Eins hvetja þeir til stillingar, og biðja fólk um að dæma ekki alla múslima út frá nokkrum skemmdum eplum.

Þá velta erlendir fjölmiðlar nú vöngum um ástæður þess að hryðjuverkamenn hafi hreiðrað um sig í Danmörku. New York times segir að Danmörk hafi allt frá birtingu Múhameðsmyndanna árið 2005 verið hötuð af múslimaheiminum. Breska ríkisútvarpið BBC vill hinsvegar meina að þáttöku Dana í Íraksstríðinu sé um að kenna. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×