Tjónið á Norðurbrú eftir mótmælin nemur tugum milljóna 3. september 2007 12:00
Talið er að tjónið og eyðileggingin vegna mótmælanna á Norðurbrú í Kaupmannahöfn um helgina nemi tugum milljónum króna og eru íbúar og verslunareigendur á Norðurbrú orðnir langþreyttir á ástandinu. Sextíu og fjögur ungmenni voru handtekin aðfaranótt sunnudags og þrjú þeirra sitja í fangelsi.Aðfaranótt sunnudagsins komu um eitt þúsund ungmenni saman á Norðurbrú til að mótmæla því að rúmlega hálft ár var liðið frá því Ungdómshúsið var rifið. Ungmennin hafa krafist þess að byggt yrði annað hús en borgaryfirvöld hafa ekki orðið við því. Frá því borgaryfirvöld ákváðu að rífa Ungdómshúsið í fyrra hefur Norðurbrú breyst í stríðsvöll í fjölmörg skipti, þar sem hundruð ungmenna hafa verið handtekin. Laugardagsnóttin var engin undantekning og voru sumir mótmælendanna allt að fimmtán og sextán ára gamlir.Sextíu og fjórir voru handteknir aðfaranótt sunnudagins og fjórir leiddir fyrir dómara í gær. Nú sitja þrír mótmælendur í fangelsi og voru þeir dæmdir í tuttugu og fimm daga fangelsi. Hinum var sleppt. Það var ekki sjón að sjá Norðurbrú eftir laugardagsnóttina og var eyðileggingin mikil. Mótmælendurnir kveiktu í húsum, brutu rúður og rændu vörum úr verslunum.Eignatjónið er gríðarlegt og er það talið nema tugum milljóna króna. Innréttingar í verslunum og veitingastöðum voru víða gjöreyðilagðar og verslunarvörum stolið fyrir hundruð þúsunda. Verslunar og veitingahúsaeigendur eru orðnir langþreyttir á þessu ástandi sem endurtekur sig með nokkurra mánaða millibili.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Fleiri fréttir Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Sjá meira