Innlent

Aukin krafa um sjálfbærni í sjávarútvegi

Gísli Svan Einarsson, framkvæmdastjóri Versins-Vísindagarða í Skagafirði, Sveinn Margeirsson, Matís, og Ólavur Gregersen, verkefnastjóri Sustainable Food Information.
Gísli Svan Einarsson, framkvæmdastjóri Versins-Vísindagarða í Skagafirði, Sveinn Margeirsson, Matís, og Ólavur Gregersen, verkefnastjóri Sustainable Food Information.

Krafa um sjálfbærni í sjávarútvegi eykst sífellt og því mikilvægt að íslensk fyrirtæki taki virkan þátt í þróun á því sviði. Þetta kom fram á alþjóðlegum vinnufundi Matís, sem fram fór á Sauðárkróki. Fjölmörg sóknarfæri eru til staðar í sjálfbærri þróun í sjávarútvegi en nauðsynlegt er að Íslendingar haldi vöku sinni svo þeir eigi þess kost að vera framarlega í umræðu um slík mál í alþjóðlegu tilliti.

„Sjálfbær þróun er sú þróun sem gerir fólki kleift að mæta þörfum sínum án þess að draga úr möguleikum komandi kynslóða til hins sama," segir í tilkynningu frá Matís, Matvælarannsóknum Íslands. Á fundinum hittust færeyskir og íslenskir fulltrúar sem tengjast sjávarútvegi og á meðal þeirra kom fram breið samstaða um mikilvægi þess að halda sjálfbærni á lofti með tilliti til „veiða, vinnslu og flutninga á erlenda markaði."

„Vinnufundurinn er hluti af vestnorrænu verkefni, sem Matís stýrir, og nefnist "Sustainable Food Information". Verkefnið hefur það að markmiði að auðvelda fyrirtækjum í matvælaiðnaði, svo sem sjávarútvegsfyrirtækjum, að sýna fram á sjálfbærni. Sérstaklega er horft til rekjanleika sjávarafurða, frá miðum til neytanda, sem er undirstaða þess að hægt sé að sýna fram á sjálfbærar veiðar," segir í tilkynningunni.

„Krafa um sjálfbærni í sjávarútvegi og rekjanleika er sífellt að aukast, ekki síst erlendis," segir Sveinn Margeirsson, deildarstjóri hjá Matís. „Vitund um umhverfismál hefur aukist og kröfur markaðarins eru í þá átt að hægt sé að sýna fram á að sjávarafurðir séu framleiddar án þess að gengið sé um of á auðlindir og að leitað sé leiða til að lágmarka mengun," segir Sveinn.

Hann segir ennfremur að Íslendingar standi að mörgu leyti vel að vígi og hafa forskot á margar aðrar þjóðir þegar kemur að rekjanleika. „Næsta skref er að nýta rekjanleikann til þess að sýna fram á sjálfbærni í sjávarútvegi. Þess vegna er mikilvægt fyrir Íslendinga að halda vöku sinni og tryggja að þeir verði áfram framarlega í umræðu um slík mál í framtíðinni."

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×