Innlent

Hverjir verða ráðherrar?

Fólk er þegar farið að velta fyrir sér nýjum ráðherrum. Sennilegt þykir að jöfn skipti verði milli kynja hjá Samfylkingunni og þá má búast við breytingum hjá Sjálfstæðisflokknum.

 

 

Tólf ráðherrar sitja í þeirri ríkisstjórn sem fer frá innan viku til tíu daga, sex hjá hvorum flokki, fjórar konur og átta karlar. Ef miðað er við sama ráðherrafjölda má velta fyrir sér einhvernvegin svona ríkisstjórn, með litlum breytingum hjá Sjálfstæðisflokki, en t.d. Sturla Böðvarsson léti af ráðherraembætti og yrði jafnvel forseti Alþingis, en slík skipti hafa áður átt sér stað hjá flokknum. Þá yrði Bjarni Benediktsson ráðherra, en flokkurinn vann mikinn sigur í kjördæmi hans og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur. Öruggt er að Ingibjörg Sólrún yrði ráðherra og þá að öllum líkindum utanríkisráðherra, Össur þykir öruggur um ráðherraembætti, þá yrði Kristján Möller traustur fulltrúi úr landsbyggðarkjördæmi og Jóhanna Sigurðardóttir hefur mikla reynslu. Þórunn Sveinbjarnardóttir er talin líklegur ráðherra, enda telja margir að hún eigi stóran þátt í því að flokkarnir reyna nú stjórnarmyndun, með góðum samböndum sínum, m.a. við varaformann Sjálfstæðisflokksins. Þá er ekki líklegt að gengið verði framhjá varaformanni flokksins Ólafi Ágústi, nema þá hann yrði gerður að þingflokksformanni.

 

Það má velta fyrir sér fleiri möguleikum. Arnbjörg Sveinsdóttir þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins þykir traustur stuðningsmaður formannsins og hefur mikla reynslu af málamiðlunum á Alþingi, en Björn Bjarnason færi úr stjórn og Bjarni Benediktsson tæki hans sæti. Samfylkingarmegin gæti Steinunn Valdís Óskarsdóttir notið reynslu sinnar sem borgarstjóri. Þá yrði Jóhanna Sigurðardóttir væntanlega einn af forsetum Alþingis eða þingflokksformaður. Guðlaugur Þór Þórðarson þykir ráðherraefni hjá Sjálfstæðismönnum.

 

Þá gætu Sjálfstæðismenn viljað nýta reynslu Guðfinnu Bjarnadóttur fyrrverandi rektors Háskólans í Reykjavík. Allt eru þetta vangaveltur og fleiri koma auðvitað til greina sem ráðherrar, en ljóst að hlutföll hafa breyst mikið á Alþingi. Sjálfstæðisflokkur og Samfylking eru stærstu flokkarnir eins og áður, en sameiginlega mynda þeir stærsta meirihluta sem myndaður hefur verið á Alþingi um áratugaskeið, með 43 þingmenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×