Lögregla beitir kylfum gegn mótmælendum 15. apríl 2007 11:27
Lögregla í Pétursborg í Rússlandi beitti í morgun kylfum gegn stjórnarandstæðingum sem safnast höfðu saman til þess að mótmæla einræðistilburðum Vladímírs Pútíns, forseta landsins. Lögregla í borginni hefur mikinn viðbúnað líkt og lögreglan í Moskvu gerði í gær þegar hún handtók vel á anna hundrað mótmælendur í höfuðborginni. Hundruð lögreglumanna voru á götum Pétursborgar, næststærstu borgar Rússlands, í morgun vegna fyrirhugaðra mótmæla stjórnarandstæðinga í borginni. Talið er að um 3000 manns hafi safnast saman í miðborg Pétursborgar til að mótmæla stjórnarháttum í Rússlandi. Lögregla lét svo til skarar skríða gegn mótmælendum. Hefur Reuters-fréttastofan eftir vitnum að lögregla hafi beitt kylfum gegn mótmælendunum og var um 150 þeirra smalað upp í bíl og ekið á brott. Stjórnarandstæðingarnir í Pétursborg fylgdu í fótspor félaga sinna í Moskvu sem í gær söfnuðust saman til mótmælagöngu. Um tvö þúsund mótmælendur voru þar, þar á meðal Garrí Kasparov, fyrrverandi heimsmeistari í skák og einn af leiðtogum stjórnarandstöðunnar. Hann var í hópi um 170 manna sem lögregla í Moskvu handtók í gær fyrir að taka þátt í mótmælunum. Kasparov var í lögreglunnar í nokkrar klukkustundir og var svo leiddur fyrir dómara þar sem hann var sektaður um jafnvirði 2500 króna fyrir að raska almannafriði. Yfirvöld bönnuðu bæði mótmælin í gær og í dag en stjórnarandstæðingar segja að stjórnvöld í Kreml hafi nú sýnt sitt rétta andlit og sannað að þau vilji fótumtroða lýðræði í landinu.
Mest lesið Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Innlent Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Erlent Tímabært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar Innlent Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Innlent Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Innlent Hafna viðræðum til hægri Erlent Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Erlent Eldur í Elliðaárdal Innlent Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Erlent Fleiri fréttir Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Sjá meira