Chirac styður engan 12. mars 2007 12:15
Jacques Chirac, Frakklandsforseti, lýsti því formlega yfir í gærkvöldi að hann ætlaði ekki að sækjast eftir endurkjöri í forsetakosningunum í næsta mánuði. Hann lýsti ekki yfir stuðningi við neinn frambjóðanda líkt og búist var við. Þar til í gærkvöldi hafði Chirac ekkert viljað gefa út um það hvort hann ætlaði aftur í framboð eða ekki. Í vor lýkur því fjörutíu og fimm ára ferli eins litríkasta stjórnmálamanns Frakka. Chirac, sem er sjötíu og fjögurra ára, hefur verið forseti í tólf ár, frá árinu 1995. Vinsældir forsetans hafa dvínað síðustu vikur og mánuði og því var talið næsta víst að hann ætlaði ekki í baráttuna. Í sjónvarpsávarpi sínu í gærkvöldi útskýri Chirac ekki ákvörðun sína og sagðist áfram ætla að þjóna Frakklandi á öðrum vettvangi. Hann lýsti sýn sinni fyrir Frakklandi til næstu tíu ára, hvatti landa sína til að hafna kynþáttafordómum og hjálpa til við að styrkja Evrópusambandið. Chirac lýsti ekki yfir stuðningi við nokkur þeirra sem berjast um embættið - ekki einu sinni við innanríkisráðherrann og flokksbróður sinn, Nicolas Sarkozy. Tæpar sex vikur eru til kosninga og þrír frambjóðendur taldir sigurstranglegastir. Auk Sarkozy eru það sósíalistinn Segolene Royal og óvæntur keppinautur þeirra, miðjumaðurinn Francois Bayrou. Sarkozy er sagður hafa naumt forskot á þau tvö. Þjóðernissinninn Jean-Marie Le Pen lýsti yfir framboði sínu í lok febrúar en þetta er í fimmta sinn sem hann sækist eftir embættinu. Hann koms óvænt í aðra umferð gegn Chirac fyrir sex árum. Ekki er búist við að hann nái jafn góðum árangri nú.
Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Innlent Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Erlent Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi Innlent Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Innlent Orbán sakaður um sprengjutilræði Erlent Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Fleiri fréttir Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Mafíuforingi á flótta handtekinn í lúxusvillu á Amalfi-strönd Ekki þeir einu sem leita flugmannsins Ekki vopnahlé um páskana heldur regn sjálfsprengidróna Loksins sinni einhver í Westminster vinnunni sinni NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Svarar engu um hver viðbrögð yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins Mímir hótaði að siga Vítisenglum á gagnrýninn borgara Önnur orrustuþota sögð hafa hrapað Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Einum úr áhöfninni bjargað Bondi vikið úr embætti dómsmálaráðherra Gerði grín að Macron og eiginkonu hans með frönskum hreim Íranir verði sendir aftur til steinaldar en viðræður standi yfir Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Sjálfsprengidrónum rignir yfir bæði Úkraínu og Rússland Áætlunarflug prófað á rafmagnsflugvélum Sjá meira