Erlent

Stöðva niðurrif af ótta við asbestmengun

Skipulagsyfirvöld í Kaupmannahöfn hafa stöðvað niðurrif Ungdomshuset vegna þess hversu mikið steypuryk hefur þyrlast upp og yfir hverfið við það. Óttast er að rykið innihaldi asbest sem getur valdið miklum skaða sé því andað inn. Norðurbrú er með þéttbýlustu hverfum Kaupmannahafnar. Nú á að reyna að bleyta upp í rykinu til að það setjist og rýma stærra svæði umhverfis húsið til að enginn hljóti skaða af. Verktakar fá ekki leyfi til að halda niðurrifinu áfram fyrr en komist hefur verið fyrir drefingu ryksins.

Faderhuset-söfnuðurinn sem á húsið hefur nýlokið blaðamannafundi þar sem tilkynnt var um framtíð hússins. Ruth Evensen forstöðumaður safnaðarins segir að þó hún hefði gjarnan viljað halda húsinu hefðu lagfæringar á því aldrei getað svarað kostnaði. Þá sagðist hún ekkert skilja í þeim foreldrum sem leyfðu börnum sínum að halda til í Ungdomshuset, það hafi verið gróðrastía óheilbrigðs lífernis og púðurtunna ofbeldisfullra mótmæla. Hún segir það hafa verið góðverk hjá Faderhuset að láta rýma og rífa húsið. Þá upplýsti hún að Faderhuset ætlaði að reisa nýtt hús á reitnum, trúarlega menningarmiðstöð með kaffihúsum og tónleikum og þangað yrðu ungir sem aldnir Kaupmannahafnarbúar velkomnir.


Tengdar fréttir

Niðurrif Ungdomshuset hafið

Risastór silfurgrár krani er nú í óðaönn við að rífa niður Ungdomshuset en niðurrifið hófst klukkan sjö í morgun. Fyrrum notendur hússins hafa margir hverjir safnast saman nærri húsinu og eru ýmist reiðir eða sorgmæddir yfir örlögum þess. Enn er þó allt með rólegasta móti þó löregla óttist að mótmælendur sýni reiði sína í verki. Vörubílar sem flytja í burtu steypubrotin úr húsinu fá lögreglufylgd þegar þeir keyra í burt af staðnum.

Kostnaður við skemmdir minnst 150 milljónir

Mótmæli undanfarinna daga í Kaupmannahöfn kosta hið opinbera minnst 150 milljónir króna. Ritt Bjerregaard borgarstjóri Kaupmannahafnar segir mótmælendur hafa fyrirgert rétti sínum til að fá nýtt hús. Ungdomshuset á Jagtvej verður rifið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×