Áhrif lækkunarinnar á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum mátti finna á Íslandi 28. febrúar 2007 19:30
Hlutabréf héldu áfram að lækka í Asíu og í Evrópu í morgun, annan daginn í röð, í kjölfar mikillar lækkunar á kínverska hlutabréfamarkaðinum í fyrradag. Áhrif lækkunarinnar mátti merkja hér á Íslandi annan daginn í röð. Hlutabréfamarkaðir í Asíu héldu áfram að lækka allt frá þremur prósentum niður í níu prósent . Kínverski hlutabréfamarkaðurinn var sá eini í Asíu sem náði sér á strik í dag eftir tæplega 9% lækkun í fyrradag en sú lækkun var sú mesta þar í landi í áratug. Lækkun á hlutabréfamörkuðum hélt áfram í Bandaríkjunum, þó svo að Dow Jones vísitalan sýndi reyndar merki um bata. Hlutabréfamarkaðir á Norðurlöndunum lækkuðu og hér á Íslandi féllu hlutabréf í verði annan daginn í röð. Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 4% á tveimur dögum og íslenska krónan hefur veikst um 1,8% síðustu tvo daga sem rekja má til þessarar alþjóðlegu lækkunar en hún styrktist um hálft prósent í dag. Þessi heimslækkun á hlutabréfamörkuðum annan daginn í röð er talin eiga upptök sín í orðrómi um ofmat hlutabréfa í Kína og því að kínversk stjórnvöld ætluðu að aftra því að áhættufyrirtæki fengju bankalán. Lækkunin á bandarískum mörkuðum má meðal annars rekja til ummæla Alan Greenspan, Seðlabankastjóra Bandaríkjanna, þar sem hann lýsti áhyggjum af niðursveiflu í kínverskum og bandarískum efnahag. Talsmenn Hvíta húsið neitaði að tjá sig um lækkanir á bandaríska hlutabréfamarkaðinum en sögðu þó að grunnurinn væri sterkur. Hér heima hefur lækkunin á alþjóðamarkaðinum haft hvað mest áhrif á fjármálafyrirtæki enda hafa þau hækkað mest undanfarna mánuði. Páll Harðarson, forstöðumaður rekstarsviðs Kauphallar Íslands sagði í samtali við Fréttastofu að segja megi að það sé dæmi um þroskamerki íslenska hlutabréfamarkaðarins þegar viðbrögð hér á landi séu viðbrögð við því sem gerist úti í heimi. Markaðurinn hér heima hafi þrátt fyrir allt farið upp um tæp 14% % það sem af er árinu. Sérfræðingar hér á landi og erlendis tala um leiðréttingu þar sem talsverðar hækkanir hafi verið á mörkuðum víða um heim og bjartsýni hafi verið ríkjandi. Svo koma efasemdir um innistæðu þessara hækkana og þá leiðrétti markaðurinn sig. Til að mynda hafi kínverski markaðurinn hækkað um 130% á einu ári. Sérfræðingar spá því reyndar að kínverski hlutabréfamarkaðurinn eigi eftir að jafna sig og forsætisráðherra Ástralíu, John Howard reyndi að draga úr áhyggjum manna með því að minna á að miðað við mikin og hraðan efnahagsvöxt í Kína, hafi mátt búast við sveiflu af þessu tagi.
Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna Erlent Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Innlent Fleiri fréttir Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Heilsu Haralds konungs hrakar Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Réðst á grunnskólanemendur með sverði Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Sjá meira