Innlent

Reiknað með að grunnskólanemendum fækki á næstu árum

MYND/GVA

Reiknað er með grunnskólanemendum fækki næstu árin samkvæmt áætlunum Hagstofunnar þar sem þeir árgangar sem eru að hefja nám eru fámennari en þeir sem ljúka munu námi á næstu árum.

Alls voru nærri 44 þúsund nemar í grunnskólum landsins í haust og hafði þeim fækkað um nærri fimm hundruð, eða eitt prósent, frá árinu á undan. Þá fækkaði einnig grunnskólum landsins milli ára um fjóra og eru þeir nú 173.

Tölur Hagstofunnar sýna enn fremur að tæplega 19 nemendur eru að meðaltali í bekk en bekkjarstærð vex með hækkandi aldri. Nemendum í einkaskólum fjölgaði um 100 milli áranna 2005 og 2006 og eru þeir nú hátt í 600 talsins í sjö skólum. Hafa nemendur í einkaskólum ekki verið fleiri frá upphafi gagnasöfnunar Hagstofu Íslands árið 1997.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×