Innlent

Eltu ölvaða bílþjófa inn í Vestfjarðagöng

MYND/GVA

Lögreglan á Ísafirði veitti í gær tveimur mönnum eftirför eftir að þeir höfðu stolið bíl við verslun í bænum. Atvikið varð laust eftir klukkan fimm í gær en þá kom maður til lögreglu og sagði bíl sínum hafa verið stolið. Gat hann bent á bílinn frá lögreglustöðinni þar sem honum var ekið inn Skutulsfjarðarbraut.

Lögreglumenn fóru strax á eftir bifreiðinni og drógu hana uppi í Vestfjarðargöngum. Hins vegar sinnti ökumaður bílsins ekki stöðvunarmerkjum og því þurfti lögregla að þvinga hann til þess að stöðva. Kom þá í ljós að tveir menn voru í bílnum og reyndust báðir ölvaðir. Þeir voru handteknir og vistaðir í fangageymslu en eigandi bifreiðarinnar fékk hana aftur í hendur óskemmda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×