Innlent

Varmársamtökin boða til borgarafundar

Varmársamtökin boða til almenns borgarafundar í dag um hina umdeildu Helgafellsbraut í Mosfellsbæ í dag. Fundurinn sem er öllum opinn verður haldinn í Þrúðvangi í Álafosskvos klukkan tvö.

Meðal þeirra sem tala á fundinum verður Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi ráðherra sem mun ræða um leikreglur lýðræðisins og formaður Varmársamtakanna, Sigrún Pálsdóttir mun kynna þær athugasemdir sem samtökin hafa gert við deiliskipulag tengibrautar um Álafosskvos.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×