Innlent

Athygli íhugar málsókn

Skemmdarverk voru unnin á skrifstofuhúsnæði almannatengslaskrifstofunnar Athygli í Síðumúlanum. Fréttablaðið/hörður
Skemmdarverk voru unnin á skrifstofuhúsnæði almannatengslaskrifstofunnar Athygli í Síðumúlanum. Fréttablaðið/hörður

Talið er að umhverfisverndarsamtökin Saving Iceland hafi málað slagorðið „Iceland is Bleeding“ (Íslandi blæðir) utan á húsnæði almannatengslaskrifstofunnar Athygli í Síðumúla í fyrrinótt.



Talsmaður samtakanna, Jaap Krater, neitar þessu en segist skilja þá sem framkvæmdu skemmdarverkin því Athygli hafi unnið fyrir Landsvirkjun.

Valþór Hlöðversson, framkvæmdastjóri Athygli, segir skemmdirnar ekki miklar og að veggjakrotið verði þrifið á mánudaginn. Athygli íhugar að fara í mál við Saving Iceland vegna skemmdarverkanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×