Aftur boðað til mótmæla á Norðurbrú í kvöld Sighvatur Jónsson skrifar 2. september 2007 18:16
Ungmenni í Kaupmannahöfn ætla að halda mótmælaaðgerðum áfram í kvöld til að knýja á um nýtt Ungdómshús. Í gærkvöldi voru rúmlega 60 manns handteknir í óeirðum á Norðurbrú. Umfang átakanna komu dönsku lögreglunni í opna skjöldu. Lögreglan líkir nóttinni við mótmælin sem urðu þegar Ungdómshúsið á Norðurbrú var rifið fyrir hálfu ári. Yfirmaður í dönsku lögreglunni segir að færri einstaklingar hafi nú valdið jafn miklum skaða og þá. Þúsund ungmenni söfnuðust saman til að ítreka ósk sína um nýtt Ungdómshús, og kvarta yfir aðgerðaleysi stjórnvalda síðasta hálfa árið. Fljótlega fór allt í bál og brand. Mótmælendur tepptu umferð, kveiktu bál, brutust inní verslanir, rifu vörur út á götu og kveiktu í. Múrsteinum og bensínsprengjum var kastað að lögreglu. Slökkviliðið í Kaupmannahöfn slökkti tuttugu og þrjú bál í borginni. Íbúar á Norðurbrú þurftu sjálfir að slökkva elda til að verja bíla sína og aðrar eigur. Tveir hinna handteknu eru yngri en fimmtán ára, en alls voru sextíu og þrír handteknir í nótt. Aðeins þrír verða leiddir fyrir dómara vegna kröfu um gæsluvarðhald. Strangar kröfur eru gerðar til lögreglu um sönnunargögn um þátt fólks í mótmælum, eftir gagnrýni á fjöldahandtökur í átökunum fyrir hálfu ári. Danska lögreglan telur sig ekki hafa haldbær gögn til að fara fram á varðhald yfir fleirum að þessu sinni.
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Innlent Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt Innlent Fleiri fréttir Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Kærastinn var á staðnum Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur Lentu geimflaug í fyrsta sinn Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Sjá meira