Franska stjórnin ósammála um innflytjendafrumvarp Þórir Guðmundsson skrifar 18. september 2007 12:08
Ráðherrar í Frakklandi hafa brugðist ókvæða við frumvarpi eigin stjórnar um að skylda innflytjendur til að fara í DNA rannsókn og frönskupróf. Innflytjendaráðherra frönsku íhaldsstjórnarinnar ber ábyrgð á frumvarpinu en utanríkisráðherrann og ráðherra sveitarstjórnamála hafa þegar lýst andúð á sumum ákvæðum þess. Verði frumvarpið að lögum þurfa innflytjendur sem koma til Frakklands í því skyni að sameinast fjölskyldum sínum þar að sanna skyldleika sinn með því að gangast undir DNA rannsókn. Það er til að koma í veg fyrir svik. Þá er gert ráð fyrir að innflytjendur þurfi að sýna fram á að þeir kunni frönsku. Fadela Amara, ráðherra sveitarstjórnamála sem er af alsírskum uppruna, segst vera hneyksluð á frumvarpinu - og að það sé meiðandi fyrir innflytjendur. Sarkozy forseti hefur lagt áherslu á harðlínustefnu gegn ólöglegum innflytjendum. Hann hefur meðal annars krafist þess að sveitarstjórnir aðstoði við að koma upp um innflytjendur sem séu ólöglegir í Frakklandi og hefur sett þeim það markmið að vísa 25.000 manns úr landi fyrir áramót. Átta borgarstjórar á Parísarsvæðinu sögðust í dag mundu standa gegn slíkum áformum, enda hefðu þeir engan áhuga á að ráðast gegn fólki sem væri vinnandi eða í skóla í París.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Missti hönd í mótmælunum Erlent Fleiri fréttir Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Sjá meira