Listasafnið Hangar-7 í Austurríki setur í lok september upp sýningu tileinkaða íslenskum listamönnum. Sjö íslenskir listamenn verða valdir til að sýna þar. Mikill fjöldi fólks sækir sýningar þarna og er þetta því mikill fengur fyrir þá listamenn sem verða valdir.
„Ég er búin að taka ákvörðun um fjóra listamenn sem sýna hjá okkur í september. Það eru þeir Helgi Þorgils, Davíð Örn Halldórsson, Guðmundur Thoroddsen og Ragnar Kjartansson," segir Lioba Reddeker, aðalsýningarstjóri listagallerísins Hangar-7 í Austurríki, sem er stödd hér á landi til að skoða verk og hitta listamenn. „Ég mun velja þrjá aðra en það er ekki alveg komið á hreint enn hverjir það verða."

Lioba segir það hafa verið ótrúlegt að koma inn á vinnustofuna hjá Helga Þorgils. Eins er hún hrifin af ungu listamönnunum sem hún er búin að velja og hlakkar til að sjá hvað gerist í kjölfar sýningarinnar í Hangar-7. Óvenjulegt listasafn
Listasafnið Hangar-7 er gamalt flugskýli sem hefur verið breytt í lista- og flugvélasafn í mikilfenglegri glerbyggingu. Hangar-7 er ekki hefðbundið listasafn, það eru engir hvítir veggir eða ferköntuð rými og stór hluti fólksins sem heimsækir safnið er ekki að koma til að skoða listaverk heldur flugvélar eða til að borða á veitingastaðnum á safninu. „Helsta vandamál nútímalistasafna er að fá fólk inn í söfnin því nútímalist er oft óaðgengileg fyrir almenning. Í Hangar-7 fáum við mikið af fólki sem fer almennt ekki á listasöfn. Það koma á milli tíu og tuttugu þúsund manns á hverja sýningu hjá okkur sem er mjög óvenjulegt."
Lioba segir að reynt sé að skilja gestina ekki úti í kuldanum og allir gestirnir fái sýningarskrá í bókarformi þar sem öll verkin eru skýrð ítarlega og gerð aðgengilegri sem skili sér í auknum skilningi á nútímalist.
Ísland í Hangar-7Síðustu ár hafa verið haldnar sýningar í safninu þar sem einblínt hefur verið á eitt land og nú í september er röðin komin að Íslandi. Það er mikill fengur í því að sýna þarna því að sögn Liobu hafa sýningar þarna komið mörgum óþekktum listamönnum á kortið. „Margir listamenn sem hafa sýnt hér hafa selt það vel að bæði geta þeir lifað á því í einhvern tíma og stór gallerí þora að taka þá inn þegar þeir eru búnir að sýna fram á að verkin þeirra seljist. Við erum mjög ánægð þegar okkur tekst að hjálpa til við að fá boltann til að rúlla hjá listafólki," segir Lioba að lokum.