Innlent

Samfylking heldur fund um stækkun álversins í Straumsvík

MYND/Anton Brink

Samfylkingin í Hafnarfirði stendur fyrir fundi um stækkun álvers Alcan í Straumsvík í Bæjarbíói í kvöld en eins og kunnugt er greiða Hafnfirðingar atkvæði um stækkunina þannn 31. mars næstkomandi.

Frummælendur á fundinum eru þrír, Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra og sendiherra, Tryggvi Harðarsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, og Þórunn Sveinbjarnardóttir alþingiskona.

Í tilkynningu vegna fundarins segir að bæjarfulltrúar meirihluta Samfylkingarinnar hafi ákveðið að tjá sig ekki opinberlega um afstöðu sína til stækkunar álversins og því hafi þótt nauðsynlegt að efna til fundar um málið. Fundurinn er öllum opinn og hefst klukkan 20.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×