Ungliðahreyfingar takast á um einkavæðingu orkufyrirtækja 11. júlí 2007 11:37 Orkuveita Reykjavíkur vill kaupa Hitaveitu Suðurnesja. MYND/RR
Ekki er kveðið sérstaklega á um einkavæðingu orkufyrirtækja í landinu í stjórnarsáttmálanum að mati formanns Ungra jafnaðarmanna. Hann gefur lítið fyrir yfirlýsingar Sambands ungra sjálfstæðismanna um hið gagnstæða. Ungliðahreyfingar stjórnarflokkanna tveggja greinir á um í afstöðu til sölu Hitaveitu Suðurnesja. „Það stendur ekkert í stefnuskrá ríkisstjórnarinnar að það eigi að einkavæða orkufyrirtæki í landinu," sagði Magnús Már Guðmundsson, formaður Ungra jafnaðarmanna, í samtali við Vísi. Ungir jafnaðarmenn sendu frá sér yfirlýsingu í gær þar sem þeir undruðust orð forystumanna Geysis Green Energy og þingmanna Sjálfstæðisflokksins um að hugsanleg kaup Orkuveitu Reykjavíkur á Hitaveitu Suðurnesja stríði gegn stefnu ríkisstjórnarinnar. Telja þeir hvergi minnst skýrum orðum á einkavæðingu orkufyrirtækja í stjórnarsáttmála Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Í kjölfarið sendi Samband ungra sjálfstæðismanna frá sér yfirlýsingu þar sem því var haldið fram að í stjórnarsáttmálanum væri þvert á móti skýrt tekið fram að stefna skuli að einkavæðingu orkufyrirtækjanna. Magnús segir það ekki skilning Ungra jafnaðarmanna að ríkisstjórnin ætli sér að einkavæða orkufyrirtækin. Vísar hann máli sínu til stuðnings í orð Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur í fjölmiðlum. Hann segir þó stjórnarsáttmálann að þessu leyti loðinn. „Margir stöldruðu við þessa setningu í stjórnarsáttmálanum og ég viðurkenni að þetta er mjög loðið orðalag. Hins vegar ljóst að það er ekki ein skoðun hjá öllum flokkum í þessum málum. Það eru til að mynda sjálfstæðimenn sem stjórna Orkuveitu Reykjavíkur," sagði Magnús.
Mest lesið Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Erlent Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Innlent Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Innlent TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Erlent Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Erlent Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum Innlent Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Innlent Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Innlent Fleiri fréttir Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Sjá meira
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent