Heilsa á heimsmælikvarða 25. apríl 2007 05:00 Frá upphafi hafa RAI-mælitækin verið í sífelldri þróun hjá InterRAI, í samstarfi fagaðila frá tuttugu löndum og tekur Ísland virkan þátt í því samstarfi. RAI-hugmyndafræðin hefur á undanförnum árum rutt sér til rúms sem áhrifarík leið til að auka gæði heilbrigðisþjónustu annars vegar og stýra betur fjármunum hins vegar. Á vegum alþjóðlegra samtaka, InterRAI (http://interrai.org), hefur verið skilgreindur fjöldi samhæfðra mælitækja sem öll miða að því að mæla nákvæmlega líðan og aðbúnað þeirra sem nýta sér tiltekna þjónustu heilbrigðiskerfisins.Kerfi til að auka gæði heilbrigðisþjónustuÞróun RAI-mælitækjanna hófst árið 1986 í BNA. Í fyrstu var RAI eingöngu hugsað sem matskerfi til að auka gæði þjónustu á hjúkrunarheimilum en með tímanum hefur aðferðafræðin verið víkkuð út á fleiri tegundir heilbrigðisþjónustu. Skammstöfunin RAI er stytting á ensku orðunum, „Residential Assessment Instrument“, sem á íslensku hefur verið þýtt sem raunverulegur aðbúnaður íbúa.Á Íslandi starfar RAI-stýrihópur, IceRAI, á vegum heilbrigðs- og tryggingamálaráðuneytisins auk þess sem skilgreindir hafa verið tæknilegir stýrihópar sem stýra tæknilegri þróun hinna mismunandi RAI-mælitækja. Landlæknir hefur eftirlitsskyldu með skráningu gagna auk þess að gæta að samræmingarhlutverki mælitækjanna. Rekstraraðilar heilbrigðisþjónustunnar nýta sér mælitækin til að mæla kostnað þjónustunnar og heilbrigðisstarfsmenn nýta sér þau til að bæta gæði þjónustunnar.Alþjóðleg mælitæki notuð í Kína og á ÍslandiRAI-mælitækin samastanda af ellefu sérhæfðum mælitækjum sem byggja á sameiginlegum grunni. Þetta eru mælitæki fyrir dvalar- og hjúkrunarheimili, heimaþjónustu, geðheilbrigðisþjónustu, öldrunarlækningar, skimun, notendur þjónustuíbúða, líknarþjónustu, bráðasjúkrahús, samfélagsog geðheilbrigðisþjónustu, fatlaða og þroskahefta.Hvert mælitæki samanstendur af mati á líðan og aðbúnaði einstaklinga annars vegar og niðurstöðum fyrirfram skilgreindra útreikninga hins vegar. Mat er framkvæmt með þeim hætti að heilbrigðisstarfsmaður safnar upplýsingum um einstakling, með því að spyrja hann eða þá sem honum eru nákomnir, og fyllir út matseyðublað viðkomandi mælitækis. Út frá matinu eru framkvæmdir útreikningar sem skila niðurstöðum sem segja til um aðbúnað sem og líkamlegt og andlegt atgervi einstaklings. Út frá niðurstöðunum er síðan mögulegt að skipuleggja þjónustuna þannig að hverjum og einum sé sinnt miðað við eigin þarfir. Þar með aukast gæði þjónustunnar. Eins geta upplýsingar um hópa einstaklinga gefið vísbendingar um hvar skórinn kreppir og þar með haft áhrif á þjónustu við smærri og stærri hópa einstaklinga. Út frá niðurstöðum má einnig sjá kostnað við þjónustuna, hvort sem það er fyrir einstaklinga eða smærri eða stærri hópa.Til að nýta sem best þær upplýsingar sem mælitækin innihalda og auka gæðin með skilvirkum hætti kom fljótt í ljós að þróa þyrfti hugbúnað til að halda utan um upplýsingar RAI-mælitækjanna. Á Íslandi hefur þróun þess hugbúnaðar verið í höndum Stika ehf.Samstarf hins opinbera og sveitarfélagaTvö mælitæki hafa verið tekin í notkun á Íslandi nú þegar og innan skamms verða önnur tvö tekin í notkun. Annars vegar RAI-mælitækið fyrir dvalar- og hjúkrunarheimili en það hefur verið í notkun á Íslandi frá 2002. Árið 2004 hófst þróun á RAI-mælitæki fyrir heimaþjónustu og hét verkefnið samstarfsverkefni Félagsþjónustunnar- og Heilsugæslunnar í Reykjavík. Haustið 2006 fór af stað hönnunarvinna fyrir næstu tvö RAI-mælitækin þ.e. fyrir geðheilbrigðisþjónustu og öldrunarlækningar. Mikilvægur þátturÖll mælitækin eiga sér sameiginlegan kjarna. Við hönnun kerfisins var því leitast við að láta hugbúnaðinn og skráningu gagna endurspegla þann kjarna. Öll kerfin hafa því staðlaðan máta við skráningu og birtingu gagna og samþætting mismunandi RAI-kerfa verður mun auðveldari. Gert hefur verið ráð fyrir því að auðvelt sé að samþætta RAI-kerfið við ýmis önnur kerfi. Jafnframt er hægt að flytja og yfirfæra skráningar úr einu RAI-kerfi yfir í annað til dæmis frá heimaþjónustukerfi yfir í dvalar- og hjúkrunarheimili þegar einstaklingur flyst á hjúkrunarheimili úr heimaþjónustu. Að auki má nefna að þar sem mælitækin eru þróuð með stöðluðum hætti auðveldar það allan samanburð á upplýsingum milli landa.Ekki hefur verið tekin ákvörðun um frekari útbreiðslu núverandi kerfa eða þróun þeirra mælitækja sem ekki hafa verið innleidd á Íslandi en vafalaust yrði það til að bæta þjónustu og eins til að bæta áætlanir og mælingar á kostnaði við umönnun og þjónustu í mismunandi tegundum heilbrigðisþjónustu.Höfundur er stærðfræðingur og tæknilegur framkvæmdastjóri Stiku ehf. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 12.07.25 Halldór Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland Skoðun Tjaldið fellt í leikhúsi fáránleikans Vésteinn Ólason Skoðun Málþófs klúður Sægreifa-flokkanna Jón Þór Ólafsson Skoðun Sóvésk sápuópera Franklín Ernir Kristjánsson Skoðun Græna vöruhúsið setur svartan blett á íslenskt samfélag Davíð Aron Routley Skoðun Heilbrigðisreglugerð WHO: Hagsmunir eða heimska? Júlíus Valsson Skoðun Dæmt um efni, Hörður Árni Finnsson,Elvar Örn Friðriksson,Snæbjörn Guðmundsson Skoðun Flugnám - Annar hluti: Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson Skoðun Mega blaðamenn ljúga? Páll Steingrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Að koma út í lífið með verri forgjöf, hvernig tilfinning er það? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Tjaldið fellt í leikhúsi fáránleikans Vésteinn Ólason skrifar Skoðun Heilbrigðisreglugerð WHO: Hagsmunir eða heimska? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Málþófs klúður Sægreifa-flokkanna Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Græna vöruhúsið setur svartan blett á íslenskt samfélag Davíð Aron Routley skrifar Skoðun Dæmt um efni, Hörður Árni Finnsson,Elvar Örn Friðriksson,Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Flugnám - Annar hluti: Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Sóvésk sápuópera Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Á hvaða vegferð er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur gagnvart sjávarútvegssveitarfélögunum? Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Dæmir sig sjálft Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Mega blaðamenn ljúga? Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Ákall um nægjusemi í heimi neyslubrjálæðis Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað hefur áunnist á 140 dögum? Heiða Björg Hilmisdóttir,Dóra Björt Guðjónsdóttir,Sanna Magdalena Mörtudóttir,Helga Þórðardóttir,Líf Magneudóttir skrifar Skoðun Samstarf er lykill að framtíðinni Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun Kjarnorkuákvæði? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hver erum við? Hvert stefnum við? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Í skugga virkjana, þegar náttúran fær ekki að tala: Hvammsvirkjun lamin í gegn með góðu og illu Gunnar Þór Jónsson,Svanborg R. Jónsdóttir skrifar Skoðun Fjármálalæsi í fríinu – fjárfesting sem endist lengur en sólbrúnkan! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Hugtakið valdarán gengisfellt Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgðin er þeirra Vilhjálmur Árnason skrifar Skoðun Dæmt um form, ekki efni Hörður Arnarson skrifar Skoðun Að þröngva lífsskoðun upp á annað fólk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Um fundarstjórn forseta Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hjálpartæki – fyrir hverja? Júlíana Magnúsdóttir skrifar Skoðun Flugnám - Fyrsti hluti: Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland skrifar Skoðun Í 1.129 daga hefur Alþingi hunsað jaðarsettasta hóp samfélagsins Grímur Atlason skrifar Skoðun Tekur ný ríkisstjórn af skarið? Árni Einarsson skrifar Skoðun Strandveiðar í gíslingu – Alþingi sveltir sjávarbyggðir Árni Björn Kristbjörnsson skrifar Skoðun Rölt að botninum Smári McCarthy skrifar Sjá meira
Skoðun Á hvaða vegferð er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur gagnvart sjávarútvegssveitarfélögunum? Anton Guðmundsson skrifar
Skoðun Hvað hefur áunnist á 140 dögum? Heiða Björg Hilmisdóttir,Dóra Björt Guðjónsdóttir,Sanna Magdalena Mörtudóttir,Helga Þórðardóttir,Líf Magneudóttir skrifar
Skoðun Í skugga virkjana, þegar náttúran fær ekki að tala: Hvammsvirkjun lamin í gegn með góðu og illu Gunnar Þór Jónsson,Svanborg R. Jónsdóttir skrifar
Skoðun Fjármálalæsi í fríinu – fjárfesting sem endist lengur en sólbrúnkan! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar
Skoðun Flugnám - Fyrsti hluti: Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson skrifar