Framtíð Wolfowitz enn óráðin 16. apríl 2007 13:00
Framtíð Pauls Wolfowitz, bankastjóra Alþjóðabankans, er enn óráðin þrátt fyrir yfirlýsingar hans um að ætla aðsitja sem fastast áfram. Wolfowitz hefur viðurkennt að hafa veitt ástkonu sinni sem einnig starfar við bankann ríflegar launa- og stöðuhækkanir. Það hefur heldur betur syrt í álinn fyrir Paul Wolfowitz, bankastjóra Alþjóðabankans og fyrrverandi aðstoðarvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna, að undanförnu. Ástæða vandræða hans nú er að skömmu eftir að hann tók við embætti sínu var ákveðið að flytja unnustu hans, Shaha Riza, úr starfi sínu hjá bankanum yfir í bandaríska utanríkisráðuneytið til að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra. Áður en af því varð veitti Wolfowitz henni hins vegar ríflega launa- og stöðuhækkun, nokkuð sem er sérstaklega viðkvæmt fyrir þessa stofnunsem krefst þess af skuldunautum sínum að þeir uppræti spillingu í stjórnkerfi sínu. Á blaðamannafundi í gær sagðist Wolfowitz ætla að halda starfi sínu áfram enda teldi hann orðspor bankans ekki hafa beðið hnekki þrátt fyrir afglöp sín. Starfsmannafélag bankans er hins vegar á öðru máli og hefur skorað á Wolfowitz að taka pokann sinn og þrýstingur á stjórn bankans fer stöðugt vaxandi um að segja honum upp. Á árlegum vorfundi þróunarmálaráðherra sem bankinn og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn stóðu fyrir í Washington um helgina létu ráðherrar Vestur-Evrópuríkjanna í ljós miklar áhyggjur um trúverðugleika bankans en efasemdir um skipun hans voru hvað mestar úr þeirri áttinni. Á næstu dögum mun því framtíð hins umdeilda Wolfowitz ráðast.
Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Innlent Fleiri fréttir Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Sjá meira