Morðinginn í Blacksburg var frá Suður-Kóreu Björn Gíslason skrifar 17. apríl 2007 13:29 MYNDAP
Maðurinn sem skaut 32 manns til bana í Virginia Tech háskólanum í Blacksburg í Virginíu í gær hét Cho Seung-hui og var suðurkóreskur. Hann var 23 ára og var á lokaári í enskunámi við skólann. Lögregluyfirvöld greindu frá þessu á blaðamannafundi í skólanum í dag. Cho var á námsmannavegabréfi í Bandaríkjunum og bjó á stúdentagörðum við skólann. Þá sagði lögregla að hún hefði fundið tvær skammbyssur á vettvangi en að rannsókn benti ekki til þess að einhver annar hefði tekið þátt í árásunum tveimur. Þær voru gerðar annars vegar á stúdentagarði og hins vegar í skólastofu. Cho fannst í stofunni þar sem hann gerði árás og hafði hann þá svipt sig lífi. Þá greindu spítalayfirvöld frá því að 28 manns væru á spítala eftir árásina en að ástand allra þeirra væri stöðugt. Kort af vettvangi voðverkanna á lóð Virginia Tech háskólans Yfirvöld í Blacksburg í Virginíu liggja nú undir miklu ámæli fyrir að hafa ekki brugðist nægilega hratt við þegar árásin var gerð en stór hluti nemendanna fékk engar viðvaranir fyrr en tölvupóstur var sendur út tveimur klukkutímum eftir fyrri árásina. Rektor skólans afsakaði sig hins vegar á blaðamannafundi í gær með því að segja að skólayfirvöld hefðu enga hugmynd haft um hversu alvarlegt málið væri.Skotárásin er sú mannskæðasta í sögu Bandaríkjanna. Minningarathöfn um hina látnu fer fram í skólanum síðar í dag og þar verða George Bush Bandaríkjaforseti og Laura, kona hans.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Fleiri fréttir Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Sjá meira