Yfirvöld sökuð um að hafa brugðist of hægt við 17. apríl 2007 12:00
Yfirvöld í Blacksburg í Virginíu liggja nú undir miklu ámæli fyrir að hafa ekki brugðist nægilega hratt við þegar vopnaður maður skaut 32 nemendur og kennara í háskóla í borginni til bana í gær. Upplýst hefur verið að maðurinn var sjálfur nemandi við skólann og af asísku bergi brotinn. Nemendur og starfsfólk Virginia Tech-háskólans eru að vonum enn í algeru losti eftir þessa verstu skotárás í sögu Bandaríkjanna en minningarathafnir um þá 32 sem létu lífið í þessu hörmulega blóðbaði voru haldnar í gærkvöld. En samhliða sorginni hefur mikil reiði gripið um sig svo og undrun á hvernig fjöldamorðin gátu átt sér stað. Nú er orðið ljóst að árásirnar tvær urðu með með tveggja klukkustunda millibili og í síðari árásinni féll stærsti hluti fórnarlambanna eða þrjátíu manns. Eftirlifendur vilja fá að vita hvers vegna yfirvöld brugðust ekki strax við eftir fyrri árásina með því að loka skólanum og veita nemendunum tilhlýðilega vernd. Stór hluti nemendanna fékk engar viðvaranir fyrr en tölvupóstur var sendur út tveimur klukkutímum eftir fyrri árásina. Rektor skólans afsakaði sig hins vegar á blaðamannafundi í gær með því að segja að skólayfirvöld hefðu enga hugmynd haft um hversu alvarlegt málið væri. Í morgun var greint frá því að árásarmaðurinn hafi verið nemandi við skólann sem bjó á heimavistinni og af asísku bergi brotnu. Það kemur heim og saman við lýsingar sjónarvotta sem segja hann hafa virst þekkja vel til á svæðinu. Lögreglan hefur hins vegar enn ekki viljað útiloka að morðinginn hafi átt sér vitorðsmann, en tvær byssur fundust á vettvangi ódæðanna í gær. Að vonum hefur vart verið um annað fjallað í Bandaríkjunum undanfarinn sólarhring. George Bush, forseti landsins, sagði í ávarp sínu í gær að gervöll þjóðin væri miður sín og allt yrði gert til að aðstoða heimamenn í Blacksburg við rannsóknina.
Mest lesið Hvað er vitað um manninn sem var skotinn við Mar-a Lago? Erlent Ófremdarástand eftir andlát voldugasta fíknaefnabaróns heims Erlent Segir Trump ekkert botna í því hvers vegna Íranir gefa ekki eftir Erlent Rödd þolendanna að drukkna í spillingarmálum og samsæriskenningum Erlent Voru í þann mund að slökkva eldinn þegar það barst tilkynning um annan Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Intuens hafi nýtt sér óttann og kvíðann sem krabbamein valdi til að græða Innlent Leggja til vantraust á hendur Silju Báru Innlent Tvær handtökur í nótt Innlent Vissu ekki að bíllinn hefði oltið fyrr en þær sáu myndir Innlent Fleiri fréttir Norðaustan stórhríð hrellir íbúa austurstrandar Bandaríkjanna Segir Trump ekkert botna í því hvers vegna Íranir gefa ekki eftir Hvað er vitað um manninn sem var skotinn við Mar-a Lago? Ófremdarástand eftir andlát voldugasta fíknaefnabaróns heims Rödd þolendanna að drukkna í spillingarmálum og samsæriskenningum Maður skotinn til bana við Mar-a-Lago Pakistanar gerðu loftárásir í Afganistan Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Íranir mótmæla á ný Minnst tólf farist í snjóflóðum á einum mánuði Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Toppurinn kominn á hæstu kirkju heims Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ Sjá meira