Kæfa mótmæli í fæðingu 5. mars 2007 11:56
Nokkur ungmenni hafa verið handtekin nærri Ungdomshuset í morgun við það að reyna að stöðva niðurrif hússins. Einhverjir lögðust fyrir flutningabíla sem fjarlægja steypubrot frá húsinu. Jagtvej, gatan sem Ungdomshuset stendur við er lokuð og hefur lögregla það að markmiði að kæfa öll mótmæli í fæðingu. Mest hefur mótmælanda sem lagðist á götuna tekist að tefja framkvæmdir um fimm mínútur. Meðal þeirra sem hafa verið handteknir í morgun er talsmaður notenda Ungdomshuset, en hann hefur einmitt gagnrýnt lögreglu fyrir óhóflega valdbeitingu. Ekki er vitað nákvæmlega hvers vegna hann var handtekinn. Niðurrif hússins gengur vel og gera verktakar ráð fyrir að það verði með öllu horfið seinni partinn á morgun.
Tengdar fréttir Niðurrifið hafið á ný Niðurrif Ungdomshuset er hafið á nýjan leik eftir að vatni var dælt á steypuryk sem þyrlast hafði upp þegar niðurrifið hófst í morgun. Það var umhverfisráð Kaupmannahafnar sem stöðvaði framkvæmdirnar um hálf tíu vegna þess hve mikið steypuryk lagði yfir hverfið og þá óttast menn að það sé asbest í steypunni. Þess verður hér eftir gætt að ryk þyrlist sem minnst upp og reynt að binda það með vatni sem dælt er yfir allt. Asbest getur verið hættulegt sé því andað inn. 5. mars 2007 10:45 Niðurrif Ungdomshuset hafið Risastór silfurgrár krani er nú í óðaönn við að rífa niður Ungdomshuset en niðurrifið hófst klukkan sjö í morgun. Fyrrum notendur hússins hafa margir hverjir safnast saman nærri húsinu og eru ýmist reiðir eða sorgmæddir yfir örlögum þess. Enn er þó allt með rólegasta móti þó löregla óttist að mótmælendur sýni reiði sína í verki. Vörubílar sem flytja í burtu steypubrotin úr húsinu fá lögreglufylgd þegar þeir keyra í burt af staðnum. 5. mars 2007 07:31 Stöðva niðurrif af ótta við asbestmengun Skipulagsyfirvöld í Kaupmannahöfn hafa stöðvað niðurrif Ungdomshuset vegna þess hversu mikið steypuryk hefur þyrlast upp og yfir hverfið við það. Óttast er að rykið innihaldi asbest sem getur valdið miklum skaða sé því andað inn. Norðurbrú er með þéttbýlustu hverfum Kaupmannahafnar. Nú á að reyna að bleyta upp í rykinu til að það setjist og rýma stærra svæði umhverfis húsið til að enginn hljóti skaða af. Verktakar fá ekki leyfi til að halda niðurrifinu áfram fyrr en komist hefur verið fyrir drefingu ryksins. 5. mars 2007 09:30 Kostnaður við skemmdir minnst 150 milljónir Mótmæli undanfarinna daga í Kaupmannahöfn kosta hið opinbera minnst 150 milljónir króna. Ritt Bjerregaard borgarstjóri Kaupmannahafnar segir mótmælendur hafa fyrirgert rétti sínum til að fá nýtt hús. Ungdomshuset á Jagtvej verður rifið. 5. mars 2007 06:56 Mest lesið Andrew handtekinn á heimili sínu Erlent Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Innlent „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Innlent „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Innlent Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Innlent Guðmundi Inga hafnað Innlent Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Innlent Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Erlent „Við systkinin erum bara vinnandi fólk“ Innlent Árekstur á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Yfir þúsund grunaðir barnaníðingar handteknir í hverjum mánuði Segir Trump setja ósanngjarnan þrýsting á Úkraínu Viðræður gengu ágætlega en ekkert fast í hendi Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Bandarískir hermenn í Nígeríu Colbert bannað að birta viðtal við Demókrata Skutu eldflaugum á Hormuz-sund þegar viðræður hófust Reyna að stöðva ein átök og koma í veg fyrir önnur Mannréttindafrömuðurinn Jesse Jackson látinn Gamall sófi og múrsteinar komu upp um barnaníðing Viðræður Írana og Bandaríkjamanna að hefjast í Genf Sjá meira
Niðurrifið hafið á ný Niðurrif Ungdomshuset er hafið á nýjan leik eftir að vatni var dælt á steypuryk sem þyrlast hafði upp þegar niðurrifið hófst í morgun. Það var umhverfisráð Kaupmannahafnar sem stöðvaði framkvæmdirnar um hálf tíu vegna þess hve mikið steypuryk lagði yfir hverfið og þá óttast menn að það sé asbest í steypunni. Þess verður hér eftir gætt að ryk þyrlist sem minnst upp og reynt að binda það með vatni sem dælt er yfir allt. Asbest getur verið hættulegt sé því andað inn. 5. mars 2007 10:45
Niðurrif Ungdomshuset hafið Risastór silfurgrár krani er nú í óðaönn við að rífa niður Ungdomshuset en niðurrifið hófst klukkan sjö í morgun. Fyrrum notendur hússins hafa margir hverjir safnast saman nærri húsinu og eru ýmist reiðir eða sorgmæddir yfir örlögum þess. Enn er þó allt með rólegasta móti þó löregla óttist að mótmælendur sýni reiði sína í verki. Vörubílar sem flytja í burtu steypubrotin úr húsinu fá lögreglufylgd þegar þeir keyra í burt af staðnum. 5. mars 2007 07:31
Stöðva niðurrif af ótta við asbestmengun Skipulagsyfirvöld í Kaupmannahöfn hafa stöðvað niðurrif Ungdomshuset vegna þess hversu mikið steypuryk hefur þyrlast upp og yfir hverfið við það. Óttast er að rykið innihaldi asbest sem getur valdið miklum skaða sé því andað inn. Norðurbrú er með þéttbýlustu hverfum Kaupmannahafnar. Nú á að reyna að bleyta upp í rykinu til að það setjist og rýma stærra svæði umhverfis húsið til að enginn hljóti skaða af. Verktakar fá ekki leyfi til að halda niðurrifinu áfram fyrr en komist hefur verið fyrir drefingu ryksins. 5. mars 2007 09:30
Kostnaður við skemmdir minnst 150 milljónir Mótmæli undanfarinna daga í Kaupmannahöfn kosta hið opinbera minnst 150 milljónir króna. Ritt Bjerregaard borgarstjóri Kaupmannahafnar segir mótmælendur hafa fyrirgert rétti sínum til að fá nýtt hús. Ungdomshuset á Jagtvej verður rifið. 5. mars 2007 06:56