Kostnaður við skemmdir minnst 150 milljónir 5. mars 2007 06:56 Getty Images
Mótmæli undanfarinna daga í Kaupmannahöfn kosta hið opinbera minnst 150 milljónir króna. Ritt Bjerregaard borgarstjóri Kaupmannahafnar mótmælendur hafa fyrirgert rétti sínum til að fá nýtt hús. Ungdomshuset á Jagtvej verður rifið. Umfang skemmdanna er margfalt það sem borgaryfirvöld hafa áður séð, en eftir mótmæli og slagsmál lögreglu og mótmælenda í desember voru skemmdir til samanburðar metnar á tvær milljónir. Kostnaður borgarinnar nú bara við hreinsun borgarinnar verður líklega nærri 20 milljónum króna, meðal annars vegna þess að víða þarf að malbika upp á nýtt eftir stóra götubruna. Stærsti kostnaðarliður hins opinbera er hinsvegar laun lögreglumanna, en næstum má fullyrða að hver einasti lögreglumaður í Kaupmannahöfn hafi unnið marga yfirvinnutíma, með nætur- og helgarálagi síðustu daga. Kostnaðurinn við það eitt fer nærri 70 milljónum króna. Þá þarf að greiða hótelreikninga og uppihald fyrir þá lögreglumenn sem komu annars staðar frá til að vera Kaupmannahafnarlögreglunni til halds og trausts. Þá þurfa tryggingafélög að greiða nærri 25 milljónum króna til eigenda bíla sem brenndir voru í götubardögum. Þá á eftir að telja þann skaða sem verslanaeigendur á Norðubrú hafa orðið fyrir, bara skemmdir á eigum þeirra nema um 60 milljónum króna. Ritt Bjerregaard borgarstjóri Kaupmannahafnar segir ungmennin hafa með skemmdarverkum sínum fyrirgert sér réttinum til að fá nýtt hús til afnota, en það hafði borgin margoft boðið þeim á meðan leitað var friðsamlegra lausna á deilunni um Ungdomshuset. Hún segir með öllu ótækt að ofbeldið verði launað með slíkum hætti. Styrktarsjóður Ungdomshusset upplýsti í gær að til væru nægilegir fjármunir til að kaupa nýtt hús, en lögmaður félagsins sagðist óttast að erfitt yrði að sannfæra væntanlega nágranna um að óhætt sé að sjá starfsemina í friði eftir atburði undanfarinna daga. Politiken greinir svo frá því á vef sínum í morgun að stórvirkar vinnuvélar séu komnar fyrir utan Ungdomshuset á Jagtvej og allt virðist tilbúið til að hefja niðurrif hússins. Faderhuset-trúarsöfnuðurinn sem á húsið hefur ekki greint opinberlega frá ákvörðun sinni um framtíð hússins en ætla að gera það á blaðamannafundi sem hefst klukkan níu þennan morguninn. Politiken fullyrti í gær að það væri lögnu ákveðið að rífa húsið.
Mest lesið Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Sjá meira