Krossfesta sig til að minnast pínu Krists 6. apríl 2007 12:15
Milljónir manna um heim allan minnast í dag krossfestingar Jesú Krists. Hvergi er jafnlangt gengið og á Fillipseyum, þar sem rúmur tugur manna lætur krossfesta sig í dag, auk þess sem hundruðir til viðbótar húðstrýkja sig. Þröngar götur Jerúsalem bera varla þann fjölda pílagríma sem sækir borgina heim á þessum árstíma til að minnast krossfestingar Jesú. Pílagrímarnir ganga jafnan sömu leið og sagt er að kristur hafi farið á leið til krossfestingarinnar. Stórir viðarkrossar og kerti einkenna athöfnina, auk hárra bænakalla. Löggæsla hefur verið snarhert í borginni í dag til að sjá til þess að allt fari vel fram. Á Fillipseyjum ganga menn lengra en nokkurs staðar annars staðar í að minnast krossfestingarinnar. Í þorpinu San Pedro Cutud má sjá menn ganga um götur og húðstrýkja sig til blóðs og jafnvel börn taka þátt í athöfninni. Sumir ganga enn lengra og láta negla fjögurra tommu nagla í gegnum fætur og lófa og hanga svo á krossinum eins og kristur sjálfur. Fjöldi túrista safnast saman í þorpinu á hverju ári til að berja herlegheitin augum, sem ekki hafa fallið vel í kramið hjá Kaþólsku kirkjunni.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Fleiri fréttir Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Sjá meira