Níu látnir í átökum í Mjanmar 27. september 2007 19:14
Herinn í Mjanmar réðst gegn andófsmönnum í dag með þeim afleiðingum að níu menn, að minnsta kosti, létu lífið og fjöldi manns særðist. Hermenn í óeirðabúningi standa vörð við gaddavírsgirðingar á götum stærstu borgar landsins og heyra mátti skothvelli þegar dimma tók. Herinn lét til skarar skríða eldsnemma í morgun. Hermenn réðust inn í klaustur, drógu munkana út og sendu þá burt á pöllum herflutningabíla. Í einhverjum klaustrum voru munkar barðir til óbóta. Síðan var aðliggjandi götum lokað með gaddavír. Þegar fólk kom út til að mótmæla herforingjastjórninni í morgun voru hermenn búnir að loka helstu vegamótum í borginni. Þeir skutu táragasi að fólki og þegar það dugði ekki hleyptu þeir af byssum sínum upp í loftið. Í átökum víðs vegar um borgina létu að minnsta kosti níu manns lífið, þeirra á meðal japanskur ljósmyndari, Búddamunkar og almennir borgarar. Útlægir íbúar landsins hafa mótmælt víða um heim. Talsmaður stjórnvalda í Kína, sem hafa talsverð ítök í Mjanmar, eða Burma, hvatti stjórnvöld til þess að viðhalda friði í samfélaginu. En það var lítinn frið að sjá á götum Yangon í dag. Fréttir berast einnig af átökum annars staðar í landinu en erfitt er að fá þær staðfestar. Og þetta gætu verið síðustu myndirnar sem berast frá Myanmar því stjórnvöld eru nú óðum að skera á upplýsingastreymi úr landinu, hægja á nettengingum og klippa á símtengingar þekktra andófsmanna.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Missti hönd í mótmælunum Erlent Fleiri fréttir Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sjá meira