Stöðugleiki og lægri vextir fylgja Evru Þórir Guðmundsson skrifar 14. september 2007 18:03
Fyrrverandi fjármálaráðherra Írlands ráðleggur Íslendingum að skoða upptöku Evru því hún hafi hjálpað Írum að viðhalda stöðugleika á tímum mikillar efnahagsuppbyggingar. Fyrir tiltölulega fáum árum var Írland ein af sorgarsögum Evrópu, land í skugga stórs granna, þjóð föst á spena evrópska styrkjakerfisins. En síðasta áratuginn hefur gæfuhjólið snúist Írum í hag - og nú er talað um keltneska tígurinn. Með því er vísað til asísku tígranna, svokölluðu, Hong Kong og Singapúr, sem uxu svo hratt á sjöunda og áttunda áratugnum. Efnahagsuppganginn á Írlandi má sjá á lífsgæðastuðli Sameinuðu þjóðanna þar sem Írar voru lengi vel í kringum tuttugasta sætið, fram að aldamótum, en fóru þá að klifra upp listann. Þeir eru þar nú í fjórða sæti, ekki langt frá Íslandi - annarri evrópskri spútnikþjóð. Þetta er þakkað umbótum á tíunda áratugnum. Fjárlagahalli varð bannorð á Írlandi, menntakerfið endurskipulagt, útlendingar hvattir til að fjárfesta, skattar lækkaðir í skiptum fyrir hóflegar launakröfur og árangurinn má sjá núna. Og þá er spurning um framhaldið. Alan Dukes, fyrrum fjármálaráðherra Írlands segir að mikilvægt sé að halda umbótum áfram til að viðhalda uppganginum. Dukes er nú forstöðumaður Evrópufræðastofnunarinnar í Dyflinni. Hann kom til Íslands á ráðstefnu Háskóla Íslands um smáríki. Í heimalandi hans eru átta prósent íbúa aðfluttir, flestir frá Austur-Evrópu. Dukes segir að upptaka Evru hafi haft jákvæð áhrif á Írlandi því hún hafi haft í för með sér lækkun vaxta og aukinn stöðugleika. Hið sama myndi væntanlega gerast á Íslandi við upptöku Evru.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Missti hönd í mótmælunum Erlent Fleiri fréttir Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Sjá meira