Vilja ekki fleiri erlenda verkamenn 14. september 2007 11:23 Michael Glos, efnhagsráðherra Þýskalands. MYND/Getty Images
Hugmynd framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins um að aðildarlönd opni landamæri sín fyrir erlendu vinnuafli hafa fallið í grýttan jarðveg í Þýskalandi. Haft er eftir Michael Glos, efnhagsráðherra Þýskalands, á vefútgáfu þýska blaðsins Der Spiegel í dag að Þjóðverjar vilji ekki taka við fleiri erlendum verkamönnum í bili. Franco Frattini, sem fer með dóms- og innanríkismál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, lýsti því yfir í gær að hann hygðist leggja fram tillögu á fundi framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í lok október þessa efnis að Evrópuríki opni landamæri sín fyrir erlendu vinnuafli. Vill hann með þessu snúa við þeirri þróun að menntað vinnuafl flytji til Bandaríkjanna en á meðan taki Evrópuþjóðir við ómenntuðu vinnuafli. Hugmyndin hefur hins vegar fallið í grýttan jarðveg hjá þýskum ráðamönnum. Haft er eftir Michael Glos, efnahagsráðherra Þýskalannds, á vefútgáfu þýska blaðsins Der Spiegel að slíkt komi ekki til greina hvað Þýskaland varðar. Segir hann að nægt framboð sé á þýskum vinnumarkaði og bendir á 9 prósent atvinnuleysi máli sínu til stuðnings. Því sé ekki skynsamlegt í stöðunni að opna landamærin frekar. Þýsk yfirvöld hafa verið treg við að opna landamæri sín fyrir verkamönnum frá löndum utan Evrópusambandsins. Í síðasta mánuði tilkynntu Þjóðverjar hins vegar að þeir myndu taka við verkfræðimenntuðum einstaklingum frá Austur-Evrópu en mikill skortur er á verkfræðingum í Þýskalandi þess stundina.
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Innlent Fleiri fréttir Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Kærastinn var á staðnum Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur Lentu geimflaug í fyrsta sinn Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Sjá meira